Fréttasafn



  • kudungur2012

8. mar. 2013

Óskað eftir tilnefningum til Kuðungsins 2012

Úthlutunarnefnd á vegum umhverfis- og auðlindaráðuneytisins óskar eftir tilnefningum um fyrirtæki eða stofnun, sem vegna verka sinna og athafna á síðasta ári, er þess verðug að hljóta umhverfisviðurkenninguna Kuðunginn fyrir árið 2012.

Óskað er eftir því að stutt greinargerð fylgi með tilnefningunni. Fyrirtæki og stofnanir geta hvort heldur tilnefnt sig sjálf eða verið tilnefnd af öðrum.

Kuðungurinn er viðurkenning á framlagi fyrirtækja og stofnana til umhverfismála sem veitt er árlega.

Í úthlutunarnefnd Kuðungsins sitja Friðrik Dagur Arnarson formaður, skipaður af umhverfis- og auðlindaráðherra, Jóna Fanney Friðriksdóttir fyrir hönd félagasamtaka á sviði umhverfismála, Kristján Þórður Snæbjarnarson fyrir hönd Alþýðusambands Íslands og María Guðmundsdóttir fyrir hönd Samtaka atvinnulífsins.

Tillögur skulu berast umhverfis- og auðlindaráðuneytinu eigi síðar en miðvikudaginn 3. apríl n.k. merktar ,,Kuðungurinn” á póstfangið postur@uar.is eða með pósti í umhverfis- og auðlindaráðuneytið, Skuggasundi 1, 150 Reykjavík.