Fréttasafn



5. feb. 2021 Almennar fréttir Innviðir Mannvirki

Ný skýrsla SI og FRV um ástand innviða kynnt í beinu streymi

Innviðir á Íslandi – ástand og framtíðarhorfur er ný skýrsla Samtaka iðnaðarins og Félags ráðgjafarverkfræðinga, FRV, sem kynnt verður í beinu streymi frá Norðurljósum í Hörpu miðvikudaginn 17. febrúar kl. 10.00–11.30. Í skýrslunni er metið umfang, ástand og framtíðarhorfur helstu innviða á Íslandi sem saman mynda lífæðar samfélagsins; flugvellir, hafnir, vegakerfi, fráveitur, hitaveitur, vatnsveitur, raforkuvinnsla, raforkudreifing- og flutningur, fasteignir ríkis og sveitarfélaga og úrgangsmál. Með fjárfestingum í innviðum er fjárfest í lífsgæðum þjóðarinnar, samkeppnishæfni atvinnulífsins og hagvexti framtíðarinnar. Hér er hægt að skrá sig. 

Þátttakendur í dagskrá 

  • Árni Sigurjónsson, formaður SI
  • Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI
  • Reynir Sævarsson, byggingarverkfræðingur hjá Eflu og formaður Félags ráðgjafarverkfræðinga
  • Ásmundur Magnússon, byggingartæknifræðingur á samgöngusviði hjá Mannviti
  • Sverrir Bollason, skipulagsverkfræðingur hjá VSÓ
  • Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
  • Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra
  • Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar
  • Guðrún Ingvarsdóttir, forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins
  • Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI

Auglysing_loka-FRV_SI

Streymið:

https://vimeo.com/event/683754