Fréttasafn



19. mar. 2019 Almennar fréttir Mannvirki

Nýr verkefnastjóri Íslenska byggingavettvangsins

Sandra Hlíf Ocares hefur verið ráðin verkefnastjóri Íslenska byggingavettvangsins sem er samstarfsvettvangur Samtaka iðnaðarins, Nýsköpunarmiðstöðvar, Mannvirkjastofnunar, Íbúðalánasjóðs og Framkvæmdasýslu ríkisins. Vettvanginum er ætlað að efla innviði, auka samkeppnishæfni og efla samtal innan byggingageirans um hagsmunamál hans.

Sandra er með BA gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík og ML gráðu frá sama skóla. Sandra býr yfir víðtækri reynslu en áður starfaði hún sem framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Eik fasteignafélagi, yfirlögfræðingur Plain Vanilla og framkvæmdastjóri þjónustusviðs Alterna. Þá var hún kosningastjóri Sjálfstæðisflokksins fyr­ir síðustu sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­ar. Um árabil starfaði hún sem sjálfstætt starfandi lögmaður. Sandra hefur gegnt ýmsum stjórnar- og trúnaðarstörfum, hún var varaformaður stjórnar ÍV sjóða, í stjórn Icelandic Gaming Industry og er nú formaður tilnefningarnefndar VÍS auk þess sem hún situr í barnaverndarnefnd Reykjavíkur. 

Viðskiptablaðið, 19. mars 2019