Fréttasafn



18. jan. 2019 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Nýsköpun

Nýsköpunarmót Álklasans

Nýsköpunarmót Álklasans verður haldið fimmtudaginn 28. febrúar kl. 14-17 í hátíðarsalnum í aðalbyggingu Háskóla Íslands. Að mótinu standa Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Samtök iðnaðarins, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Samál og Álklasinn.

Nýsköpunarmótið er opið öllum og þar verða erindi bæði frá fulltrúum iðnaðarins sem og háskóla- og rannsóknarsamfélagsins.

Þá verða veitt hvatningarverðlaun Álklasans til nemenda á háskólastigi sem vinna að verkefnum tengdum áliðnaðinum.

Nánari dagskrá verður birt fljótlega.

Hér er hægt að skrá sig.