Fréttasafn



20. des. 2018 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Ráðherra á tökustað nýrrar íslenskrar spennuþáttaraðar

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra heimsótti í morgun tökustað nýrrar íslenskrar spennuþáttaraðar sem nefnist Valhallarmorðin. Það er Truenorth sem framleiðir þáttaröðina ásamt RÚV og tóku á móti ráðherra þeir Kristinn Þórðarson, framleiðandi Truenorth sem jafnframt er formaður Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda (SÍK), og Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins (SI), en SÍK er aðili að SI. Stefnt er að því að sýna þættina um jólin 2019.

Ráðherra, ásamt aðstoðarmanni og skrifstofustjóra skrifstofu menningarmála, fylgdust með tökum og ræddu við leikstjóra, leikara og aðra starfsmenn sem koma að verkefninu.  Á annað hundrað manns koma að gerð þáttanna sem verða átta talsins. Þáttaröðin hefur nú þegar verið seld víða um heim en gerður hefur verið samningur við alþjóðlega efnisveitu um dreifingu þáttanna.

Eftirspurn eftir leiknum sjónvarpsþáttum hefur aukist talsvert á heimsvísu á undanförnum árum og mikill áhugi er á íslenskum sjónvarpsþáttum. Þessi áhugi  og sýning íslenskra sjónvarpsþátta erlendis er ekki síst til þess fallinn að styrkja stöðu íslenskunnar auk þess að kynna íslenska menningu og vera góð landkynning fyrir Ísland.

Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra: „Gróskan í íslenskri kvikmyndagerð er mikil og eftirtektarverð. Það er ekki annað hægt en að fyllast stolti yfir þeim árangri sem framleiðendur íslenskra sjónvarpsþátta hafa náð á frekar skömmum tíma og á markaði þar sem samkeppnin er afar hörð. Það er frábært að þættirnir séu á íslensku og að eftirspurnin og áhuginn sé svona mikill, það undirstrikar mikilvægi íslenskrar kvikmyndaframleiðslu fyrir tungumálið.“

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI: „Framleiðsla á kvikmyndum og sjónvarpsþáttum er mikilvæg fyrir íslenskt efnahagslíf en árleg velta í kvikmyndaiðnaði nemur á bilinu 15-20 milljörðum og eru þá ekki talin með þau óbeinu hagrænu áhrif sem kvikmynda- og sjónvarpsframleiðsla hefur á aðrar greinar atvinnulífsins og þar með verðmætasköpun. Nefna má að fjölmargir ferðamenn sækja Ísland heim eftir að hafa séð náttúrfegurð landsins í sjónvarpi.”

Kristinn Þórðarson, framleiðandi Truenorth: „Endurgreiðslufyrirkomulag vegna kostnaðar við kvikmynda- og sjónvarpsframleiðsluverkefni hér á landi hafi vakið áhuga erlendra aðila og tugir erlendra verkefna hafi verið unnin hér á landi undanfarin ár. Þannig hefur byggst upp þekking og reynsla í kvikmyndaiðnaði á Íslandi sem hefur skilað sér í auknum gæðum og aukinni eftirspurn eftir íslensku efni.”

Á myndinni hér fyrir ofan eru, talið frá vinstri, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, Kristinn Þórðarson, framleiðandi Truenorth, Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, Björn Thors, leikari, Nína Dögg Filippusdóttir, leikkona, og Þórður Pálsson, leikstjóri.

Truenorth_tokustadur_1545236525678Kristinn Þórðarson, framleiðandi Truenorth, Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, og Björn Thors, leikari.

Á mbl.is er greint frá heimsókninni, 19. desember 2018.