Fréttasafn



20. apr. 2020 Almennar fréttir Starfsumhverfi

Ráðherrar sitja fyrir svörum hjá félagsmönnum

Samtök atvinnulífsins, aðildarsamtök SA og Viðskiptaráð áforma að vera með fleiri rafræna fundi með ráðherrum á næstunni fyrir félagsmenn sína en fyrsti slíki fundurinn var með fjármála- og efnahagsráðherra, Bjarna Benediktssyni, síðastliðinn miðvikudag. 

Á vef SA segir að á fundinum hafi komið fram í máli ráðherrans að mikilvægt sé að halda áfram að sýna samstöðu í því að klára aðgerðir sem yfirvöld hafa gripið til í tengslum við sóttvarnir. Þá sé lag að keyra innlenda hagkerfið eins hratt í gang og kostur gefst og gera allt sem hægt er til að opna Ísland fyrir umheiminum á öruggan og skynsaman hátt, þó slíkt sé vitaskuld mikilli óvissu háð. Bjarni sagði meðal annars á fundinum að í nýjum aðgerðarpakka stjórnvalda yrði litið sérstaklega til þeirra fyrirtækja sem fengu fyrirmæli frá yfirvöldum um að loka dyrum sínum í því skyni að hefta útbreiðslu veirunnar. Á fundinum gafst félagsmönnum kostur á beina spurningum sínum beint til ráðherrans.

Næsti slíki fundur fyrir félagsmenn verður næstkomandi miðvikudag 22. apríl þegar Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, mun sitja fyrir svörum. Fundarboð verður sent til félagsmanna.