Fréttasafn



1. mar. 2018 Almennar fréttir Mannvirki

Ráðstefna Verk og vit um framtíð höfuðborgarsvæðisins

Framtíð höfuðborgarsvæðisins, skipulag, innviðir og fjármögnun er yfirskrift ráðstefnu sem haldin verður í Laugardalshöll föstudaginn 9. mars kl. 13–16 í tengslum við sýninguna Verk og vit 2018 í samstarfi við Landsbankann og Samtök iðnaðarins. Markmið ráðstefnunnar er að varpa ljósi á framtíð höfuðborgarsvæðisins þegar horft er til skipulags, innviða og fjármögnunar. Farið verður yfir helstu tækifæri og áskoranir sem höfuðborgarsvæðið stendur frammi fyrir næstu ár. 

Höfuðborgarsvæðið hefur tekið miklum breytingum að undanförnu og framundan eru fjölmargar áskoranir. Mikið hefur t.d. hvílt á byggingariðnaðinum við uppbyggingu innviða og á sama tíma hefur átt sér stað mikil uppbygging gistirýmis fyrir ferðamenn.

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, setur ráðstefnuna. Erindi flytja Ármann Kr. Ólafsson, formaður Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og bæjarstjóri í Kópavogi, Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins, Ari Skúlason, hagfræðingur hjá Landsbankanum, Una Jónsdóttir, hagfræðingur og deildarstjóri leigumarkaðsmála hjá Íbúðalánasjóði, Örn Tryggvi Johnsen, rekstrarstjóri ÞG verktaka, og Ingibjörg Þórðardóttir, löggiltur fasteignasali hjá Híbýli fasteignasölu og fyrrv. formaður Félags fasteignasala. Fundarstjóri er Sigmundur Ernir Rúnarsson fjölmiðlamaður.

Ráðstefnan er öllum opin en þátttökugjald er kr. 6.900. Innifalinn er aðgöngumiði á sýninguna Verk og vit 2018. Hér er hægt að skrá sig. Sætafjöldi er takmarkaður.

Radstefna-verk-og-vit