Fréttasafn



11. nóv. 2022 Almennar fréttir Ár grænnar iðnbyltingar Iðnaður og hugverk Mannvirki Nýsköpun Orka og umhverfi Starfsumhverfi

Rætt um græna nýsköpun í sjónvarpsþætti á Hringbraut

Annar sjónvarpsþátturinn af fjórum um græna framtíð sem unnir eru í samstarfi Samtaka iðnaðarins og Hringbrautar var sýndur í gærkvöldi kl. 20 og endursýndur kl. 22. Fjögur fimmtudagskvöld í nóvember verður þáttaröðin sýnd á Hringbraut þar sem fjallað er um fyrirtæki í iðnaði og hvernig þau nálgast markmið um kolefnishlutlaust Ísland. Umsjónarmaður þáttanna er Guðmundur Gunnarsson. Í þættinum er sjónum beint að grænni nýsköpun. Rætt er við Ólaf Teit Guðnason hjá Carbfix, Sigrúnu Helgadóttur hjá Norðuráli, Kristinn Aspelund hjá Ankeri, Írisi Baldursdóttur hjá Snerpu Power og Nönnu Elísu Jakobsdóttur hjá SI.

Á vef Hringbrautar er hægt að horfa á annan þáttinn þar sem rætt erum græna nýsköpun. 

Á vef Hringbrautar er hægt að horfa á fyrsta þáttinn þar sem rætt var um græn orkuskipti við Björk Kristjánsdóttur hjá CRI, Björn Inga Victorsson hjá Steypustöðinni, Sigurð Ástgeirsson hjá Ísorku, Auði Nönnu Baldvinsdóttur hjá VOR, Guðmund Þorbjörnsson hjá Eflu og Sigríði Mogensen hjá SI.

Hringbraut_thaettir-Graen-framtid