Fréttasafn



5. jan. 2016 Iðnaður og hugverk

Rafnar og Vikal International í samstarf um smíði hrað- og smábáta fyrir lúxussnekkjur

Rafnar ehf., sem hefur síðasta áratug unnið að þróun, hönnun og smíði á byltingarkenndri tegund báta, hefur tekið höndum saman við Vikal International um smíði á hrað- og léttabátum fyrir lúxussnekkjur á alþjóðamarkaði.  Vikal International, sem er í eigu Gunnars Víkings, hefur í yfir 30 ár smíðað hraðbáta og léttabáta í Ástralíu fyrir lúxussnekkjur auðkýfinga víða um veröld.  

„Samningur Rafnar og Vikal International felur í sér að Vikal International mun bjóða viðskiptavinum sínum að smíða fyrir þá hrað- og léttabáta fyrir lúxussnekkjur á Rafnar skrokki sem er byltingarkennd hönnun sem unnið hefur verið að um árabil og boðar tímamót á þessu sviði. Þá gefur þessi samningur okkur óbeinan aðgang að 3 - 400 af auðugustu fjölskyldum heims, sem skiptir að sjálfsögðu miklu máli “ segir Björn Jónsson, framkvæmdastjóri Rafnar ehf.  

Rafnar ehf. afhenti í sumar Landhelgisgæslunni nýjan strandgæslubát, en hann gerir Landhelgisgæslunni kleift að bregðast við aðstoðarbeiðnum á grunnslóð með skjótari hætti. Þá afhenti Rafnar Hjálparsveit Skáta í Kópavogi nýjan leitar- og björgunarbát í haust sem gjörbreytir aðstæðum til leitar og björgunar.   Þá stendur yfir hjá Rafnar smíði á leitar- og björgunarbáti fyrir Björgunarsveitina Geisla á Fáskrúðsfirði sem verður afhentur sveitinni á fyrri hluta ársins 2016. 

„Vikal International hefur náð góðri fótfestu á þeim markaði sem sérhæfir sig í hrað- og léttabátum fyrir lúxussnekkjur á alþjóðamarkaði og það er okkur mikil ánægja að geta verið fyrstir til að bjóða viðskiptavinum okkar upp á slíka báta með þessum byltingarkenndum skrokki ,“ segir Gunnar Víkingur, framkvæmdastjóri Vikal International. 

Hinir nýju bátar verða markaðssettir sem Vikal/Rafnar en Gunnar segir að markaðurinn sé 3-400 ríkustu fjölskyldur heims, sem þurfi á hrað- og léttabátum að halda á snekkjum þeirra, sem margar eru á stærð við stærstu togara íslenska fiskiskipaflotans.  Reiknað er með að gengið verði frá samningum um fyrstu Vikal/Rafnar bátanna snemma árs 2016. 

Um Rafnar: Rafnar ehf. er hugarfóstur Össurar Kristinssonar, stofnanda Össurar hf., en fyrirtækið hefur síðustu 10 ár unnið að þróun, hönnun og smíði á byltingarkenndri tegund báta.  Um 30 manns starfa hjá fyrirtækinu í tæplega 6.000 fm húsnæði í Kópavogi. 

Um Vikal International: Vikal International var stofnað í Ástralíu árið 1982 af bátasmiðnum Gunnari Víkingi og sérhæfir sig í smíði og sölu á hrað- og léttabáta fyrir lúxussnekkjur á alþjóðamarkaði.