Fréttasafn



27. ágú. 2021 Almennar fréttir Menntun

Rafræn ferilbók er bylting í framkvæmd vinnustaðanáms

Máney Eva Einarsdóttir og Jón Freyr Eyþórsson nemar í rafvirkjun urðu fyrstu iðnnemarnir til að undirrita rafræna iðnnámssamninga eftir að umfangsmiklar kerfisbreytingar á iðnnáminu voru innleiddar að áeggjan Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra. Notkun rafrænna ferilbóka er hryggjarstykkið í þeim umfangsmiklu breytingum. Ásamt nemendunum skrifuðu undir samninginn þau Helgi Rafnsson, raffræðingur og framkvæmdastjóri Rafholts, og Guðrún Randalín Lárusdóttir, aðstoðarskólameistari Tækniskólans.

Í tilkynningu er haft eftir mennta- og menningarmálaráðherra að ferilbókin sé tákngervingur grundvallarbreytinga í iðnnámi og síðasta púslið í iðnbyltingunni sem hafi átt sér stað á kjörtímabilinu. „Við höfum breytt viðhorfum í garð iðnmenntunar, aukið áhuga fólks á öllum aldri á iðnnámi, aukið réttindi iðnmenntaðra og jafnræði nemenda og kappkostað að bæta þjónustu við þá. Endurskoðun á inntaki námsins er ómetanleg og með ferilbókinni verður bylting í samskiptum nema og meistara. Hún eykur gæði iðnnáms, tryggir aukið samræmi innan iðngreina og að þjálfunin miðist enn betur við þarfir atvinnulífsins.“ 

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, segir það mikið fagnaðarefni að rafræn ferilbók sé nú orðin að veruleika enda hafi SI auk félagsmanna lengi barist fyrir því. „Það er óhætt að segja að hér sé um byltingu að ræða í allri framkvæmd vinnustaðanáms. Skipulag verður einfaldara og eftirfylgni með náminu verður betri. Allar þær umbætur á iðnnámi sem menntamálaráðherra hefur komið til leiðar að undanförnu eru til þess gerðar að auka gæði námsins og greiða götu nemenda sem sýnir sig meðal annars í aukinni aðsókn. Rafræn ferilbók mun án efa styrkja allt vinnustaðanám og um leið vinnumarkaðinn enda er iðnmenntað fólk eftirsótt til vinnu.“ 

Í ávarpi sínu við undirritunina sem fram fór í Rafholti í gær sagði Sigurður jafnframt að Samtök iðnaðarins væri stoltur þátttakandi, auk Sambands íslenskra sveitarfélaga, að verkefninu #fyrir mig sem byggir á aðgerðaráætlun mennta- og menningarmálaráðherra um að efla iðn- og verknám og fjölga starfs- og tæknimenntuðu fólki. Innleiðing rafrænnar ferilbókar sé enn einn þáttur verkefnisins sem kemur til framkvæmda og má segja að um gjörbyltingu sé að ræða varðandi framkvæmd vinnustaðanáms, en atvinnulífið hafi lengi kallað eftir betra skipulagi og meiri eftirfylgni með náminu. Hann sagði það vera tilvalið að skrifa undir fyrsta nemasamninginn í rafrænni ferilbók í Rafholti en það hafi einmitt verið SART, Samtök rafverktaka sem séu innan raða Samtaka iðnaðarins, sem hófu vinnu við rafræna ferilbók fyrir um það bil tíu árum síðan. Sigurður sagði menntamálaráðherra eiga mikið hrós skilið fyrir að hafa farið í mestu umbætur á iðnnámi sem átt hafi sér stað um áratuga skeið. „Samtök iðnaðarins binda miklar vonir við þær kerfisbreytingar sem ráðist hefur verið í og hafa þegar skilað sér í aukinni aðsókn í starfsnám, en rafræna ferilbókin er einn mikilvægasti hlekkurinn í þeim breytingum.“

Hér er hægt að sjá stutt myndskeið frá viðburðinum.

Undirskrift-10050Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, flutti ávarp við athöfnina.

Undirskrift-9990Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, flutti ávarp. 

Undirskrift-09967Helgi Rafnsson, framkvæmdastjóri Rafholts, bauð gesti velkomna.

Undirskrift-09973Jón B. Stefánsson, fyrrverandi skólameistari Tækniskólans, stýrði dagskránni.

Undirskrift-0023

Undirskrift-09975

Undirskrift-09966

Undirskrift-10109

Undirskrift-10123