Fréttasafn



24. apr. 2024 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Mannvirki

Stjórnendur iðnfyrirtækja telja aðstæður í efnahagslífinu góðar

Fleiri stjórnendur íslenskra iðnfyrirtækja telja að aðstæður í efnahagslífinu séu góðar en þeir sem telja að þær séu slæmar. Þetta kemur fram í nýrri greiningu SI. Þegar litið er til næstu 6-12 mánaða eru fleiri stjórnendur iðnfyrirtækja sem telja að aðstæður í efnahagslífinu muni batna en þeir sem telja að þær muni versna. Má þar greina nokkru meiri bjartsýni á efnahagsframvinduna en á sama tíma í fyrra. Þetta er meðal þess sem kemur fram í niðurstöðum könnunar sem Outcome framkvæmdi fyrir Samtök iðnaðarins meðal stjórnenda íslenskra iðnfyrirtækja innan Samtaka iðnaðarins í febrúar og mars á þessu ári.

Þá telur mun hærra hlutfall stjórnenda að tekjur muni aukast en minnka á öðrum, þriðja og fjórða ársfjórðungi sé miðað við sömu ársfjórðunga 2023. Sömu sögu er að segja þegar spurt er um fjölgun eða fækkun starfsfólks. Litið til næstu tólf mánaða telja mun fleiri stjórnendur iðnfyrirtækja að starfsmönnum þeirra fyrirtækja muni fjölga en fækka. Þegar stjórnendur eru spurði hvort skortur sé á starfsfólki í þeirra fyrirtæki núna svara fleiri því játandi en neitandi. Á milli ára lækkar þó hlutfall þeirra lítillega sem telja að það sé skortur. Að mati stjórnendanna skortir helst iðnmenntað starfsfólk og því næst háskólamenntað. Það er sambærileg staða og verið hefur síðustu ár.  

Hér er hægt að nálgast greininguna í heild sinni.

 

Horfur-i-efnahagsmalum