Fréttasafn



29. ágú. 2019 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Stofnun Félags smáframleiðenda matvæla í burðarliðnum

Opinn stofnfundur Félags smáframleiðenda matvæla verður haldinn næstkomandi þriðjudag 3. september kl. 13-15 í húsakynnum Samtaka iðnaðarins í Borgartúni 35. Í fréttatilkynningu segir að ólík verkefni sem hafa verið unnin á vegum Matarauðs Íslands undanfarin tvö ár hafi gefið til kynna þörf á öflugra samstarfi og samtakamætti smáframleiðenda matvæla. Dæmi um slík verkefni séu hinir svokölluðu REKO hópar þar sem milliliðalaus viðskipti milli smáframleiðenda og neytenda fara fram í gegnum samfélagsmiðilinn Facebook og greining á starfsemi Beint frá býli.

Í tilkynningunni er haft eftir Oddnýju Önnu Björnsdóttur, ráðgjafa, sem unnið hefur að ýmsum verkefnum fyrir Matarauð Íslands og fleiri, að mikill og vaxandi fjöldi smáframleiðenda matvæla séu starfandi í landinu. „Þeir eru að verða sífellt sýnilegri og fyrirferðameiri á markaði og um leið hefur eftirspurn eftir slíkum matvælum stóraukist. Því er kominn tími til að þeir sameinist í einu félagi sem vinni að hagsmunamálum þeirra á ólíkum sviðum, sé opinber málsvari þeirra og stuðli að framförum í málefnum sem þá varðar.“

Á Facebook er hægt að finna viðburðinn: Stofnfundur Félags smáframleiðenda matvæla - vinnufundur

Dagskrá fundarins 3. september

  • Fundur settur og farið yfir aðdragandann
  • SVÓT greining
  • Samþykktir (drög þegar til staðar til að vinna út frá)
  • Aðgerðaáætlun
  • Kosning stjórnar
  • Fundi slitið