Fréttasafn



21. mar. 2022 Almennar fréttir Ár grænnar iðnbyltingar Mannvirki

Stórsýningin Verk og vit í Laugardalshöll

Stórsýningin Verk og vit verður haldin í fimmta sinn dagana 24.-27. mars 2022 í Laugardalshöll. Um hundrað sýnendur munu þar kynna starfsemi sína, nýjungar, vörur og þjónustu. Sem fyrr er sýningin ætluð fagaðilum á sviði byggingariðnaðar, skipulagsmála og mannvirkjagerðar. Meðal sýnenda eru byggingarverktakar, verkfræðistofur, skólar, fjármála-, ráðgjafa-, og hugbúnaðarfyrirtæki, sveitarfélög, tækjaleigur svo eitthvað sé nefnt. Þá gefst einnig almenningi og nemendum kostur á að kynna sér þessar mikilvægu atvinnugreinar þessa helgi. 

Í tilkynningu segir að sýningin Verk og vit hafi sannað sig sem mikilvægur vettvangur fyrir aðila í bygginga- og mannvirkjageiranum til að hittast, styrkja viðskiptasambönd og afla nýrra, kynna vörur og þjónustu og nýjungar, ásamt því að ræða málin, sem meðal annars skýrir þessa góðu þátttöku. Nú sé góður tími fyrir fyrirtæki að sækja fram, þétta raðirnar og setjast niður með núverandi og nýjum viðskiptavinum og eiga samtal um verkefnin sem framundan eru. Til þess sé sýningin Verk og vit frábær vettvangur, segir Áslaug Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Verk og vit.

Miðasala fyrir fagaðila og aðra gesti er á verkogvit.is og tix.is.

AP almannatengsl er framkvæmdaraðili sýningarinnar en samstarfsaðilar eru innviðaráðuneytið, Reykjavíkurborg, Samtök iðnaðarins, BYKO og Landsbankinn. Sýningin verður opin fagaðilum á fimmtudegi og föstudegi og almenningur verður síðan boðinn velkominn á laugardag og sunnudag.