Fréttasafn



4. júl. 2023 Almennar fréttir Mannvirki Starfsumhverfi

Stýrihópur um breytingar á byggingarreglugerð

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, hefur skipað stýrihóp um breytingar á byggingarreglugerð til loka árs 2024, samkvæmt upplýsingum á vef Stjórnarráðsins. Stýrihópnum sem fulltrúi SI á sæti í er ætlað að vinna tillögur um gagngerar breytingar á regluverkinu og einfalda umgjörð um byggingariðnað í því skyni að lækka byggingarkostnað og leggja grunn að stöðugleika á húsnæðismarkaði. Hópnum er ætlað að skila tillögum að úrbótum til ráðherra haustið 2024.

Á vef Stjórnarráðsins kemur fram að lögð verði áhersla á að tillögurnar muni leiða til framfaraskrefa í bygginga- og mannvirkjagerð til framtíðar en markmiðið sé að einfalda stjórnsýslu, auka gæði og neytendavernd og stuðla að aukinni nýsköpun og sjálfbærni. Í vinnu sinni eigi hópurinn að hafa til hliðsjónar tillögur OECD til úrbóta á lögum og reglum í byggingariðnaði, þ.m.t. að auka sjálfbærni, stafræna stjórnsýslu og gæði.

Stýrihópurinn er skipaður tveimur fulltrúum frá ráðuneytinu, tveimur frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS), einum frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og einum frá Samtökum iðnaðarins. Hópurinn er skipaður eftirtöldum:

  • Ingveldur Sæmundsdóttir, formaður, innviðaráðuneyti,
  • Björn Karlsson, innviðaráðuneyti
  • Hermann Jónasson, HMS
  • Þóra Margrét Þorgeirsdóttir, HMS
  • Arnar Þór Sævarsson, framkvæmdastjóri Sambands íslenskra sveitarfélaga
  • Sigurður Hannesson, Samtök iðnaðarins.

Með hópnum starfar Þórunn Lilja Vilbergsdóttir, lögfræðingur hjá HMS.