Fréttasafn



15. apr. 2019 Almennar fréttir Mannvirki

Talning SI besta heimildin

Í nýrri Hagsjá Landsbankans um fasteignamarkaðinn segir að talning Samtaka iðnaðarins sé besta heimildin. Þar segir að SI hafi um árabil talið íbúðir í byggingu á höfuðborgarsvæðinu og í helstu byggðakjörnum landsins tvisvar á ári og niðurstöður SI hafi á síðustu árum verið einu áreiðanlegu heimildirnar um byggingu íbúðarhúsnæðis en mikill skortur hafi verið á haldbærum opinberum upplýsingum. 

Hægir á vexti

Verður byggt allt of mikið af íbúðum á höfuðborgarsvæðinu? er yfirskrift Hagsjárinnar að þessu sinni og segir þar að nýjustu upplýsingar SI um byggingarmagn séu frá því í mars síðastliðnum og samkvæmt þeim séu byggingar íbúðarhúsnæðis enn að aukast, en heldur hægi þó á vextinum. Þannig hafi aukist fjöldi íbúða í byggingu sem séu fokheldar og lengra komnar um 12% frá síðustu mælingu í október 2018, en íbúðum sem ekki voru orðnar fokheldar fækkaði um 4%. Þetta bendi sterklega til þess að frekar sé verið að draga úr starfsemi en hitt. Þessi þróun sjáist enn betur ef einungis sé litið til byggingar á fjölbýli, en þar fjölgaði íbúðum sem voru fokheldar og lengra komnar um 24%, en íbúðum að fokheldu fækkaði um 12%. Það líti því út fyrir að verkefni í fjölbýli fari síður af stað en verið hefur. 

Þarf að stórauka byggingu á litlu og hentugu húsnæði

Í Hagsjánni er því velt upp hvort muni skapast mikið ójafnvægi. Þar sem um 7.700 muni verða fullkláraðar í ár og á næstu tveimur árum og að þessar íbúðir séu væntanlega of stórar og dýrar til þess að leysa þann vanda sem fyrir er, þá sé væntanlega vandi á höndum. Allar þær tillögur sem hafi verið lagðar fram til þess að leysa meintan vanda snúi í þá átt að það þurfi að stórauka byggingu á litlu og hentugu húsnæði. Það sé því ákveðin hætta á því að framboð veigamikils hluta íbúða sem nú eru á teikniborðinu og í byggingu geti orðið mun meira en eftirspurn á næstu árum.

Á vef Landsbankans er hægt að lesa Hagsjánna í heild sinni.