Fréttasafn



8. maí 2024 Almennar fréttir Mannvirki

Um 25 þúsund gestir heimsóttu Verk og vit

Mikill áhugi á byggingariðnaði, mannvirkjagerð og skipulagsmálum sýndi sig á stórsýningunni Verk og vit sem haldin var í Laugardalshöll 18.-21. apríl. Um 25.000 gestir sóttu sýninguna, bæði fagaðilar og almenningur. Í tilkynningu segir að aðsóknin hafi verið svipuð og á Verk og vit síðustu tvö skipti, 2018 og 2022. Rúmlega 100 sýnendur tóku þátt að þessu sinni, en þetta var í sjötta sinn sem sýningin var haldin.

Fyrstu tveir dagarnir voru ætlaðir fagaðilum en um helgina var almenningi einnig boðið að heimsækja sýninguna. Að auki komu um 1.800 nemendur í 10. bekk grunnskóla á sýninguna í boði Verk og vit og Samtaka iðnaðarins, m.a. til að kynna sér iðn- og tækninám. Einnig buðu Verk og vit, Ístak og BYKO um 300 framhalds- og háskólanemum að koma á sýninguna og upplifa það sem þessar spennandi greinar hafa upp á að bjóða.

Áslaug Pálsdóttir, framkvæmdastjóri AP almannatengsla, sem er framkvæmdaaðili sýningarinnar: „Verk og vit heppnaðist mjög vel í alla staði. Metnaður sýnenda var mikill, sem skilaði sér vel til þeirra fjölmörgu gesta sem komu. Aðsóknin var þétt alla dagana og bersýnilegt að gestir gáfu sér góðan tíma, sér í lagi þeir sem starfa á þessum vettvangi. Verk og vit hefur skipað sér mikilvægan sess sem fundarstaður fagaðila og hér mynduðust bersýnilega fjölmörg viðskiptasambönd. Að þessu sinni lögðu sýnendur áherslu á uppbyggingu í iðnaði, iðnmenntun, fjárfestingu í innviðum og umhverfismál, sem eru allt mál sem eru mikið í deiglunni. Sýnendur á Verk og vit hafa jafnframt aldrei verið fjölbreyttari en nú og sérstaklega var ánægjulegt að sjá fjölgun erlendra sýnenda, sem styrkir sýninguna og markaðinn enn frekar.“

Í tilkynningu segir að mikilvægi Verk og vit sjáist kannski best á því að sýningarrými hafi verið orðin uppseld strax í ágúst í fyrra. Langur biðlisti myndaðist og margir þurftu frá að hverfa. Það þurfi því ekki að koma á óvart að undirbúningur næstu sýningar sé þegar hafinn, en hún er fyrirhuguð árið 2026.

AP almannatengsl er framkvæmdaraðili sýningarinnar en samstarfsaðilar eru mennta- og barnamálaráðuneytið, innviðaráðuneytið, Samtök iðnaðarins, Byko og Landsbankinn.