Fréttasafn



30. mar. 2022 Almennar fréttir Ár grænnar iðnbyltingar Mannvirki

Um 25.000 gestir komu á stórsýninguna Verk og vit

Um 25.000 gestir komu á stórsýninguna Verk og vit sem haldin var í Laugardalshöll 24.-27. mars. Þetta er sambærileg aðsókn og var á sýningunni 2018 en þá var aðsóknarmet slegið. Um 100 sýnendur tóku þátt að þessu sinni og kynntu vörur sínar og þjónustu, en þetta var í fimmta sinn sem sýningin var haldin.

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, setti sýninguna formlega. Fyrstu tveir dagarnir voru ætlaðir fagaðilum en um helgina bauðst almenningi að heimsækja sýninguna og var áhuginn mikill.

Í tilkynningu er haft eftir Áslaugu Pálsdóttur, framkvæmdastjóra sýningarinnar, að von hafi verið á góðum viðtökum því áhuginn hafi verið mikill á síðustu sýningum. „Það var samt sérlega ánægjulegt að sjá að um 25.000 gesti koma og skoða það sem sýnendur höfðu upp á að bjóða. Aðsóknarmet var slegið á sýningunni 2018 en þá komu einnig um 25. þúsund gestir. Það var ljóst á þátttakendum og gestum að það var löngu orðið tímabært að halda svona stórsýningu aftur. Það er einnig greinilegt að Verk og vit hefur skipað sér mikilvægan sess hjá fagaðilum til að hittast og mynda viðskiptasambönd. Það er þegar farið að huga að næstu sýningu, en hún er fyrirhuguð á svipuðum tíma 2024.“

Sýningin Verk og vit er ætluð þeim sem koma að byggingariðnaði, skipulagsmálum og mannvirkjagerð á ýmsum stigum, m.a. sveitarfélögum, verktökum, iðnaðar- og þjónustufyrirtækjum, menntastofnunum, hönnuðum og ráðgjöfum.

Framkvæmdaraðili sýningarinnar er AP almannatengsl og samstarfsaðilar eru innviðaráðuneytið, Landsbankinn, BYKO, Reykjavíkurborg og Samtök iðnaðarins.