Fréttasafn



28. ágú. 2018 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk

Verkefnisstjórn mótar matvælastefnu fyrir Íslands

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Kristján Þór Júlíusson, hefur sett á fót verkefnisstjórn sem hefur það  hlutverk að móta matvælastefnu fyrir Ísland. Matvælastefnan skal liggja fyrir í árslok 2019. Með matvælastefnunni skulu fylgja tillögur að aðgerðaáætlun til innleiðingar stefnunnar fyrir íslenskt atvinnulíf og stjórnkerfi. Vala Pálsdóttir, er formaður verkefnisstjórnarinnar og skipuð af ráðherra. Ragnheiður Héðinsdóttir, viðskiptastjóri matvælaliðnaðar á framleiðslusviði SI, situr í stjórninni og var tilnefnd af Samtökum iðnaðarins. Aðrir í verkefnisstjórninni eru Ingi Björn Sigurðsson, skipaður af ráðherra, Anna Guðmundsdóttir, tilnefnd af Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, og Sigurður Eyþórsson, tilnefndur af Bændasamtökum Íslands. Verkefnastjórar koma frá Matís og auk þess mun Matarauður Íslands eiga áheyrnarfulltrúa.

Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er lögð áhersla á að Ísland skuli vera leiðandi í framleiðslu á heilnæmum landbúnaðarafurðum og tryggð verði áframhaldandi samkeppnishæfni sjávarútvegs á alþjóðlegum mörkuðum. Þá beri að nýta tækifæri sem byggjast á áhuga á matarmenningu með sjálfbærni og gæði að leiðarljósi, þróa á lífhagkerfið enn frekar og stuðla að nýsköpun og vöruþróun til að auka virði afurða og byggðafestu.

Á vef ráðuneytisins er hægt að lesa nánar um matvælastefnuna.

Myndin hér fyrir ofan er af Ragnheiði Héðinsdóttur, sem tilnefnd var af Samtökum iðnaðarins í verkefnisstjórnina.