Samtök menntatæknifyrirtækja - IEI
Samtök menntatæknifyrirtækja vinna að hagsmunum og stefnumálum menntatæknifyrirtækja.
Samtök menntatæknifyrirtækja (IEI) vinna að hagsmunum og stefnumótun fyrirtækja sem starfa í menntatækniiðnaði. Heiti samtakanna á ensku er Icelandic EdTech Industry (IEI).
Samtökin voru stofnuð 23. nóvember 2022 og í þeim eru fyrirtæki sem öll starfa í ört vaxandi alþjóðlegum menntatækniiðnaði, sem er metinn á 24.000 milljarða króna með yfir 16% árlegum vexti.
Menntatækni má almennt skipta í tvo meginflokka:
- Menntatækni fyrir skólastofnanir: lausnir sem bæta kennsluumhverfi kennara, námsgögnum, gæðamálum, inngildingu og hvatakerfum, lestri og stærðfræði.
- Menntatækni fyrir háskóla, fullorðinsfræðslu og fyrirtæki: Lausnir sem styðja við mannauðsmál, starfsþróun og námsgrunn innan háskóla og atvinnulífs. Þær ná meðal annars til inngildingar, kennslu í íslensku fyrir innflytjendur, utanumhalds um þekkingu og þjálfunar í gegnum leikjaumhverfi.
Greinin á sér langa sögu á heimsvísu en er enn tiltölulega ung á Íslandi. Með aukinni nýtingu menntatækni má umbylta kennsluháttum og ná betri árangri í gæðamálum, hvatningu, læsi og stærðfræði.
Markmið IEI er að efla hagsmuni og vaxtarskilyrði íslenskra menntatæknifyrirtækja og stuðla þannig að framgangi greinarinnar og íslensks menntakerfis í heild.
Tengiliður hjá SI: Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir, sérfræðingur í mennta- og mannauðsmálum hjá SI og viðskiptastjóri IEI, hulda@si.is
Stjórn
Stjórn kosin 2025
- Íris E. Gísladóttir, formaður, Evolytes Ísland
- Hinrik Jósafat Atlason, Atlas Primer
- Jón Gunnar Þórðarson Bara tala
- Heiðar Ingi Svanson, Iðnú
- Guðmundur Axelsson, Beedle
- Helgi Sigurður Karlsson, Beanfee
- Varamenn:
- Brynja Baldursdóttir, InfoMentor
- Kristrún Birgisdóttir, AI
Stjórn kosin 2024
- Íris E. Gísladóttir, formaður, Evolytes Ísland
- Ásta Magnúsdóttir, HÍ
- Helgi Sigurður Karlsson, Beanfee
- Jón Gunnar Þórðarson Bara tala
- Hinrik Jósafat Atlason, Atlas Primer
- Guðmundur Axelsson, Beedle
Stjórn kosin 2022
- Íris E. Gísladóttir, formaður, Evolytes
- Eloise Freygang, Beedle
- Jón Gunnar Þórðarsson, Mussila
- Helgi S. Karlsson, Beanfee
- Hinrik Jósafat Atlason, Atlas Primer
Starfsreglur
Starfsreglur Samtaka menntatæknifyrirtækja
1. gr.
Samtök menntatæknifyrirtækja - IEI, starfa innan Samtaka iðnaðarins sem starfsgreinahópur um málefni greinarinnar. Samtökin heita á ensku Icelandic EdTech Industry.
2. gr.
Markmið IEI er að vinna að hagsmuna- og stefnumálum menntatæknifyrirtækja.
3. gr.
Aðild að IGI geta aðeins átt fyrirtæki sem eru aðilar að Samtökum iðnaðarins. Sækja þarf sérstaklega um aðild að IEI og tekur stjórn IEI ákvörðun um aðild.
Miðað er við að fyrirtæki innan greinarinnar séu hlutafélög (hf.), einkahlutafélög (ehf.) eða samvinnufélög (sf.) og starfi í menntatækni á Íslandi.
4. gr.
Stjórn IEI skipa 5 fulltrúar aðildarfyrirtækja, formaður og 4 meðstjórnendur, auk tveggja varamanna sé þörf á. Formaður er kosinn sérstaklega til eins árs í senn, en tveir meðstjórnendur árlega til tveggja ára í senn, þannig að aldrei gangi fleiri en þrír úr stjórn. Varamenn eru kosnir til eins árs í senn. Heimilt er að endurkjósa stjórnar- og varamenn.
5. gr.
Formaður stjórnar boðar til stjórnarfunda í samráði við tengilið IEI innan Samtaka iðnaðarins svo oft sem þurfa þykir. Formaður skal þó boða stjórnarfund ef stjórnarmaður krefst þess.
6. gr.
Stjórnarfundir IEI skulu haldnir svo oft sem þurfa þykir, þó ekki sjaldnar en tvisvar á ári að meðtöldum aðalfundi. Boða skal stjórn til fundar með bréfi eða tölvupósti.
7. gr.
Aðalfundur skal haldinn árlega. Aðalfundur hefur æðsta vald í málefnum IEI. Til aðalfundar skal boða skriflega með bréfi eða tölvupósti, með minnst 14 daga fyrirvara. Aðeins þeir félagar, sem senda fulltrúa á aðalfund eða veita öðrum fulltrúa skriflegt umboð fyrir atkvæði sínu, hafa atkvæðisrétt.
Tillögur, sem óskað er eftir að teknar verði fyrir fundinn, þurfa að hafa borist stjórn félagsins a.m.k. 7 dögum fyrir boðaðan aðalfund. Þær skulu sendar félagsmönnum með ekki skemmri en 5 daga fyrirvara.
8. gr.
Dagskrá aðalfundar:
1. Fundarstjóri kjörinn.
2. Ritari fundarins kjörinn.
3. Formaður flytur skýrslu stjórnar og flytur tillögur að verkefnaskrá næsta starfsárs.
4. Breytingar starfsreglna, ef fyrir liggja.
5. Kosning stjórnar:
a) formaður til eins árs
b) tveir meðstjórnendur og tveir til vara til eins árs
6. Stjórnarkjöri lýst
7. Önnur mál
9. gr.
Við atkvæðagreiðslu á aðalfundi ræður einfaldur meirihluti. Allir fullgildir aðilar að IEI hafa jafnan atkvæðisrétt á fundum félagsins, þ.e. hverju fyrirtæki fylgir eitt atkvæði.
10. gr.
Til aukaaðalfundar er hægt að boða ef 2/3 félagsmanna fara fram á það við stjórn félagsins. Þá verði hann haldinn eigi síðar en 30 dögum eftir að stjórnin fær beiðni þess efnis.
11. gr.
Stjórnin skal skipta með sér verkum á fyrsta fundi eftir aðalfund.
12. gr.
Aðalfundur hefur heimild til að breyta starfsreglum þessum, að því tilskildu að a.m.k. helmingur félagsmanna sé viðstaddur og a.m.k. 2/3 greiði breytingunum atkvæði sitt.
Samþykkt á stofnfundi IEI þann 23. nóvember 2022