Myndbandasafn

Gerum Ísland að nýsköpunarlandi

16. des. 2020

Samtök iðnaðarins hafa gefið út myndband þar sem hvatt er til nýsköpunar. Af því tilefni var efnt til viðburðar 16. desember 2020 að viðstöddum forseta Íslands þar sem myndbandið var frumsýnt. 

Samtök iðnaðarins hófu ár nýsköpunar í janúar 2020 og hafa hvatt til þess að nýsköpun verði sett í forgang við uppbyggingu atvinnulífs á Íslandi. Í myndbandinu sem Sagafilm gerði koma fram Salka Ýr Ómarsdóttir, 12 ára grunnskólanemandi, Árni Sigurjónsson, formaður SI, Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, Ágústa Guðmundsdóttir hjá Zymetech, Kolbrún Hrafnkelsdóttir hjá Florealis, Sesselja Ómarsdóttir hjá Alvotech og Vignir Örn Guðmundsson hjá CCP. Lagið í myndbandinu nefnist Further og er eftir íslensku hljómsveitina Warmland.

Með útgáfu þessa myndbands vilja Samtök iðnaðarins leggja sitt af mörkum til að vekja athygli á mikilvægi nýsköpunar fyrir framfarir í íslensku atvinnulífi. Með því að styðja við umgjörð og hvata til nýsköpunar í nýjum og rótgrónum fyrirtækjum telja samtökin að samkeppnishæfni Íslands verði efld til framtíðar.

Í myndbandinu er greint frá því að spár geri ráð fyrir að árið 2050 verði 250 þúsund starfandi á Íslandi sem þýðir að skapa þarf 60 þúsund ný störf á næstu 30 árum. Þar kemur fram að núna sé besti tíminn til að hugsa hlutina upp á nýtt og við séum byrjuð þar sem stigin hafa verið mikilvæg skref í rétta átt til að tryggja bætta umgjörð nýsköpunar á Íslandi með auknum hvötum til fjárfestinga, meðal annars í rannsóknum og þróun. Með því að fjárfesta í nýsköpun er hægt að efla hugverkaiðnaðinn sem er fjórða stoðin í gjaldeyrisöflun þjóðarbúsins á sama tíma og hlúð er að því sem fyrir er. Bent er á að það sé hægt að skapa öll þessi nýju störf þar sem við höfum gert þetta áður en á síðustu 30 árum hafa 67 þúsund ný störf orðið til sem hafa tryggt góð lífskjör á Íslandi.

Hér er hægt að nálgast upptöku frá viðburðinum sem haldinn var 16. desember 2020.

https://vimeo.com/491672292

 

 

Hér er hægt að nálgast myndbandið:

https://vimeo.com/491678237