Viðburðir
02.11.2018 kl. 11:30 - 13:00 Hylur, Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35

Ársfundur Framleiðsluráðs SI

Ársfundur Framleiðsluráðs SI verður haldinn föstudaginn 2. nóvember kl. 11.30-13.00 í Hyl á 1. hæð í Húsi atvinnulífsins í Borgartúni 35. Fundarstjóri er Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI.

Dagskrá

  • Setning
  • Ársskýrsla Framleiðsluráðs SI
  • Framleiðsluráð SI til næstu tveggja ára kynnt
  • Starfsumhverfi framleiðslufyrirtækja á Íslandi – Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI
  • Umræður og önnur mál

Framleiðsluráð Samtaka iðnaðarins er samstarfsvettvangur framleiðslu- og matvælagreina innan SI. Framleiðsluráð SI vinnur þvert á hefðbundna skiptingu atvinnugreina. Í ráðinu sitja að jafnaði 6-8 manns. Þeir sem hafa áhuga á að starfa með Framleiðsluráði SI eru hvattir til að láta vita af því með því að senda póst á netfangið ragnheidur@si.is eða gudrunbj@si.is.

Fulltrúar allra framleiðslufyrirtækja í SI eru hvattir til að koma á fundinn og heyra um starfsemi ráðsins.  

Bókunartímabil er frá 28 sep. 2018 til 31 okt. 2018