Viðburðir
Hver ber ábyrgð á mannvirkinu? Fræðslufundur á Selfossi
Samtök iðnaðarins standa fyrir fræðslufundi um ábyrgðir þriðjudaginn 5. nóvember kl. 17.00 á Hótel Selfossi. Á fundinum mun Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI, fara yfir minnisblað sem Ingibjörg Halldórsdóttir, héraðsdómslögmaður, tók saman fyrir samtökin og varðar lagareglur um ábyrgð hönnuða, byggingarstjóra og iðnmeistara. Jafnframt verður fjallað um skaðabótaábyrgð vinnuveitenda, starfsábyrgðartryggingar og tímalengd ábyrgða. Fundarstjóri er Friðrik Á. Ólafsson, viðskiptastjóri byggingariðnaðar á mannvirkjasviði SI.