Viðburðir
06.11.2019 kl. 17:00 Hótel KEA, Akureyri

Hver ber ábyrgð á mannvirkinu? Fræðslufundur á Akureyri

Samtök iðnaðarins standa fyrir fræðslufundi um ábyrgðir miðvikudaginn 6. nóvember kl. 17.00 á Hótel KEA. Á fundinum mun Friðrik Á. Ólafsson, viðskiptastjóri byggingariðnaðar á mannvirkjasviði SI, fara yfir minnisblað sem Ingibjörg Halldórsdóttir, héraðsdómslögmaður, tók saman fyrir samtökin og varðar lagareglur um ábyrgð hönnuða, byggingarstjóra og iðnmeistara. Jafnframt verður fjallað um skaðabótaábyrgð vinnuveitenda, starfsábyrgðartryggingar og tímalengd ábyrgða. Fundarstjóri er Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI.

Bókunartímabil er frá 4 nóv. 2019 til 6 nóv. 2019