Viðburðir
Iðnþing SI 2020
Nýsköpun er leiðin fram á við er yfirskrift Iðnþings 2020 sem verður vegna samkomutakmarkana í beinni útsendingu á mbl.is og visir.is föstudaginn 18. september kl. 13.00-14.30. Landsmönnum öllum er boðið á Iðnþingið en samtökin vilja leggja sitt af mörkum til að hvetja til nýsköpunar á öllum sviðum atvinnulífsins nú þegar þörf er á viðspyrnu í efnahagslífinu. Á Iðnþingi 2020 verður kastljósinu beint að því hvernig við mætum áskorunum um fjölgun nýrra starfa. Þar gegnir nýsköpun veigamiklu hlutverki, hvort heldur er í rótgrónum fyrirtækjum eða nýjum sprotafyrirtækjum. Tækifærin liggja víða og á þinginu verður horft til þess hvernig nýsköpun getur drifið vöxt framtíðar.
Þátttakendur í dagskrá
- Árni Sigurjónsson, formaður SI
- Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
- Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
- Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI
- Sigríður Mogensen, sviðsstjóri hugverkasviðs SI
- Þórður Magnússon, stjórnarformaður Eyris
- Sesselja Ómarsdóttir, framkvæmdastjóri lyfjagreiningardeildar Alvotech
- Sigurður Ragnarsson, forstjóri ÍAV
- Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir, aðstoðarforstjóri CRI
- Guðmundur Fertram Sigurjónsson, forstjóri Kerecis
- Ágústa Guðmundsdóttir, annar tveggja stofnenda Zymetech
- Fida Abu Libdeh, annar tveggja stofnenda GeoSilica
- Óskar Þórðarson, annar af stofnendum Omnom Chocolate Reykjavík
- Kolbrún Hrafnkelsdóttir, stofnandi Florealis
- Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP
- Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis
- Björn Lárus Örvar, yfirmaður rannsókna og nýsköpunar ORF Líftækni
- Guðrún Hafsteinsdóttir, ein af eigendum Kjöríss
- Eyjólfur Magnús Kristinsson, forstjóri Advania Data Centers
- Jónína Guðný Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri viðskipta- og þjónustusviðs Terra
- Hjörtur Erlendsson, forstjóri Hampiðjunnar
- Logi Bergmann, fundarstjóri