Viðburðir
03.02.2021 kl. 9:00 - 10:30 Rafrænn fundur

Kynningarfundur um Tækniþróunarsjóð

Samtök iðnaðarins og Rannís standa fyrir rafrænum kynningarfundi um Tækniþróunarsjóð miðvikudaginn 3. febrúar kl. 9.00-10.30 með yfirskriftinni Nú er tækifæri til að ná lengra með Tækniþróunarsjóði.

Dagskrá

1. Fulltrúar Rannís gera grein fyrir 

  • Styrkjaflokkum Tækniþróunarsjóðs
  • Eurostars styrkjum
  • Skattfrádrætti vegna rannsókna- og þróunarkostnaðar
  • Reglugerð um frádrátt frá tekjum erlendra sérfræðinga

2. Reynsla félagsmanna SI af umsóknaferli Tækniþróunarsjóðs

  • Ívar Meyvantsson, þróunarstjóri, Valka
  • Jan Eric Jessen, yfirmaður þróunarmála, Algalíf

3. Umræður

Fundarstjóri er Sigríður Mogensen, sviðsstjóri hugverkasviðs SI.

Bókunartímabil er frá 28 jan. 2021 til 3 feb. 2021