Viðburðir
10.03.2021 kl. 15:30 - 17:00 Hús atvinnulífsins, Borgartúni 35

Aðalfundur SUT

Aðalfundur Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja, SUT, verður haldinn miðvikudaginn 10. mars kl. 15.30-17.00 í Húsi atvinnulífsins í Borgartúni 35 .

Dagskrá aðalfundar

1. Kosinn fundarstjóri.

2. Kosinn ritari fundarins.

3. Formaður flytur skýrslu stjórnar og flytur tillögur að verkefnaskrá næsta starfsárs.

4. Breytingar starfsreglna, ef fyrir liggja.

5. Kosning stjórnar:

a) formaður til eins árs

b) 3 meðstjórnendur til tveggja ára

6. Lýst stjórnarkjöri

7. Önnur mál

Aðeins þeir félagar sem senda fulltrúa á aðalfund hafa atkvæðisrétt. Athugið að tillögur, sem óskað er eftir að teknar verði fyrir fundinn, þurfa að hafa borist stjórn félagsins að minnsta kosti 7 dögum fyrir boðaðan aðalfund.

Fyrir frekari upplýsingar um fundinn er hægt að hafa samband við Eddu Björk Ragnarsdóttur, viðskiptastjóra á hugverkasviði SI, edda@si.is.

Bókunartímabil er frá 23 feb. 2021 til 10 mar. 2021