Viðburðir
19.10.2021 kl. 9:00 - 10:00 Rafrænn fundur

Rafrænn fræðslufundur SI um verktakarétt

Hvenær er kominn á samningur? er yfirskrift rafræns fræðslufundar fyrir félagsmenn SI um verktakarétt sem haldinn verður þriðjudaginn 19. október kl. 9.00-10.00. Erindi á fundinum flytja Björg Ásta Þórðardóttir, yfirlögfræðingur SI, og Steinunn Pálmadóttir, lögfræðingur hjá SI.

Dagskrá

  • Gildi munnlegra samninga - Dómaumfjöllun: 1. Munnlegur samningur sem byggir á kostnaðaráætlun 2. Samningur byggir á tilkynningu til byggingarfulltrúa og eðli starfa 3. Gildi munnlegs samnings sannað með tímaskýrslu og verkdagbók
  • Meistarauppáskriftir - Hvaða þýðingu hefur uppáskrift? Er kominn á bindandi samningur á milli aðila eða er kominn á „forkaupsréttur“ á að bjóða í verkhlutann þegar að honum kemur?
  • Umræður 
Þau sem skrá sig fá sendan hlekk á fundinn.

Bókunartímabil er frá 13 okt. 2021 til 19 okt. 2021