Viðburðir
18.05.2022 kl. 12:00 - 13:30 Rafmennt, Stórhöfða 27

Fræðslufundur SART og FLR

Samtök rafverktaka, SART, og Félag löggiltra rafverktaka, FLR, standa fyrir fræðslufundi miðvikudaginn 18. maí kl. 12.00-13.30 í húsnæði Rafmenntar að Stórhöfða 27. Boðið verður upp á matarmikla gúllassúpu.

Á fundinum munu fulltrúar Veitna kynna breytingar sem undanfarið hafa verið gerðar á þjónustu Veitna við löggilta rafverktaka. Framsögu hafa Skúli Skúlason, Sigurjón Kr. Sigurjónsson og Egill Jónasson frá Veitum. Að framsögum loknum verður efnt til umræðna. 

Fundarstjóri er Kristján D. Sigurbergsson, framkvæmdastjóri SART.

Bókunartímabil er frá 16 maí 2022 til 18 maí 2022