Viðburðir
09.03.2023 kl. 14:00 - 16:00 Silfurberg í Hörpu

Iðnþing 2023

Tækifæri til vaxtar í öflugum iðnaði er yfirskrift Iðnþings 2023 sem fer fram í Silfurbergi í Hörpu fimmtudaginn 9. mars kl. 14-16

Fjölbreyttur og öflugur iðnaður er undirstaða góðra lífskjara á Íslandi og þar liggja helstu tækifærin til vaxtar hagkerfisins. Fjölbreytt iðnfyrirtæki um land allt skapa tugþúsundir starfa og miklar útflutningstekjur. Iðnaður er stærsta atvinnugreinin á Íslandi og kemur víða við sögu í okkar daglega lífi. Á Iðnþingi 2023 verður fjallað um stóru vaxtartækifærin á Íslandi og áskoranir sem þarf að mæta í mannauði, orkuöflun og innviðauppbyggingu.

Þátttakendur í dagskrá

  • Árni Sigurjónsson, formaður SI
  • Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
  • Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra
  • Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
  • Róbert Wessman, forstjóri og stjórnarformaður Alvotech
  • Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel
  • Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka
  • Valgerður Hrund Skúladóttir, framkvæmdastjóri Sensa
  • Halldór Halldórsson, forstjóri Íslenska kalkþörungafélagsins
  • Guðbjörg Rist Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Atmonia
  • Guðmundur Árnason, fjármálastjóri Controlant
  • Halldóra Vífilsdóttir, framkvæmdastjóri Nordic
  • Tryggvi Þór Herbertsson, stjórnarformaður Qair
  • Sigurður R. Ragnarsson, stjórnarformaður ÍAV
  • Björg Ásta Þórðardóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI
  • Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs SI
  • Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI


Bókunartímabil er frá 13 apr. 2022 til 9 mar. 2023