Viðburðir
05.11.2024 kl. 11:30 - 13:30 Tónlistar- og ráðstefnuhúsið Harpa

Kosningafundur SI - umræður með formönnum flokka

Samtök iðnaðarins standa fyrir umræðufundi með formönnum flokka þriðjudaginn 5. nóvember kl. 12.00-13.30 í Silfurbergi í Hörpu undir yfirskriftinni Hugmyndalandið. Boðið verður upp á léttan hádegisverð frá kl. 11.30.

Með fundinum vilja samtökin leggja sitt af mörkum til uppbyggilegrar umræðu í aðdraganda alþingiskosninga um það hvernig efla megi atvinnulíf og verðmætasköpun á Íslandi og vekja athygli á þeim málefnum sem brýnust eru nú og til framtíðar.

Þátttakendur í dagskrá:

  • Árni Sigurjónsson, formaður SI
  • Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
  • Inga Sæland, Flokkur fólksins
  • Sigurður Ingi Jóhannsson, Framsóknarflokkurinn
  • Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Miðflokkurinn
  • Kristrún Frostadóttir, Samfylkingin
  • Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, Viðreisn
  • Svandís Svavarsdóttir, Vinstri græn
  • Bjarni Benediktsson, Sjálfstæðisflokkurinn
  • Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, Píratar

Bókunartímabil er frá 16 okt. 2024 til 5 nóv. 2024