Viðburðir
23.01.2025 kl. 14:00 Hús atvinnulífsins, Borgartúni 35

Fundur um ljósvist

Samtök iðnaðarins boða til fundar um drög að breytingum á byggingarreglugerð sem varða ljósvist og útsýni. Fundurinn fer fram 23. janúar kl. 14 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, 1. hæð.  

Dagskrá

  • Ásta Logadóttir Ph.D., lýsingarsérfræðingur hjá Lotu og fulltrúi í samráðshóp sem vann tillögur að umræddum breytingum, kynnir framlögð drög að breytingum á byggingarreglugerð.
  • Gunnar Atli Gunnarsson, lögmaður hjá Landslögum, fer yfir möguleg áhrif af gildistöku draganna verði þau samþykkt óbreytt.
  • Ólafur Árnason, forstjóri Skipulagsstofnunar, fer yfir samspil draganna við skipulagsferli.

Drögin fóru í samráðsferli í október sl. en málið hlaut ekki afgreiðslu þáverandi innviðaráðherra. Það liggur ekki fyrir hvað nýr ráðherra ætlar sér að gera í málinu en ljóst er að málið verður tekið upp að nýju.

Álitamál hafa vaknað í tengslum við fyrirhugaðar breytingar sem samtökin telja mikilvægt að taka til skoðunar og hvetja því félagsmenn til að fjölmenna á fundinn og sömuleiðis til að senda okkur ábendingar og athugasemdir við drögin, sem finna má  hér.  

Sætaframboð er takmarkað og því nauðsynlegt að skrá sig.

Bókunartímabil er frá 13 jan. 2025 til 23 jan. 2025