Aðalfundur SÍK
Aðalfundur Sambands íslenskra kvikmyndaframleiðenda, SÍK, mun fara fram þriðjudaginn 24. júní kl. 16.00 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35. Léttar veitingar verða í boði.
Dagskrá aðalfundar verður samkvæmt lögum SÍK. Athygli er vakin á að gerðar eru tillögur til breytinga á lögum félagsins. Lagabreytingatillögur má finna á innri vef SÍK undir fundargögn aðalfundar, ásamt öðrum gögnum sem lögð verða fyrir fundinn.
Auglýst er eftir framboðum til formanns og þriggja meðstjórnenda. Framboð berist á gunnar@si.is eigi síðar en tveimur dögum fyrir aðalfund.
Dagskrá aðalfundar:
1. Fundarsetning.
2. Skýrsla stjórnar.
3. Gagnsæisskýrsla sbr. gr. 4.4. laga SÍK.
4. Framlagning endurskoðaðra reikninga.
5. Lagabreytingar.
6. Laun stjórnar.
7. Stjórnarkjör.
8. Kjör endurskoðenda.
9. Félagsgjöld ákvörðuð.
10. Önnur mál.