Viðburðir
Fræðslufundur um útboðsmál í mannvirkjaiðnaði
Samtök iðnaðarins standa fyrir fræðslufundi fyrir félagsmenn í mannvirkjaiðnaði um útboðsmál mánudaginn 9. febrúar kl. 12.00-13.00 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, fundarsalur Hylur, 1. hæð. Fundurinn verður einnig í streymi.
Á fundinum mun Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, fara yfir samspil útboðsréttar og samkeppnisréttar og hlutverk SI. Þá mun Dagmar Sigurðardóttir, lögmaður og eigandi Lagastoðar og sérfræðingur í opinberum innkaupum fara yfir algeng mistök og hvað ber að varast í útboðsferlinu.
Boðið verður upp á léttar veitingar.
Þau sem skrá sig fá sendan hlekk á fundinn.
