Viðburðir
19.03.2026 kl. 13:00 - 14:45 Laugardalshöll

Fagþekking framtíðarinnar í byggingar- og mannvirkjaiðnaði

Samtök iðnaðarins standa fyrir opnunarráðstefnu Verk og vit 2026 fimmtudaginn 19. mars kl. 13.00-14.45 í Laugardalshöllinni.

Á ráðstefnunni verður kastljósinu beint að fagþekkingu framtíðarinnar í byggingar- og mannvirkjaiðnaði - hvaða hæfni, metnað og fagmennsku vill iðnaðurinn rækta og efla? 

Á ráðstefnunni skoðum við hvernig störf og vinnustaðir eru að breytast og hvernig við tryggjum að íslenskur iðnaður búi yfir þeirri færni sem þarf til að takast á við tæknilegar umbreytingar og þróun gervigreindar.

Þátttakendur í dagskrá

  • Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI
  • Sigurður R. Ragnarsson, stjórnarformaður ÍAV
  • Páll V. Bjarnason, framkvæmdastjóri fjárfestinga Heima
  • Runólfur Þór Ástþórsson, framkvæmdastjóri VSÓ
  • Þórður Ingi Guðmundsson, forstöðumaður gervigreindarseturs Advania
  • Ingibjörg Birna Kjartansdóttir, þróunarstjóri BIM upplýsingatækni hjá Ístaki
  • Hildur Ingvarsdóttir, skólameistari Tækniskólans
  • Ingibjörg Lilja Þórmundsdóttir, stjórnarformaður Rafal  

Í lok ráðstefnunnar er gestum boðið á formlega opnun Verk og vit kl. 15.00.  

Bókunartímabil er frá 17 feb. 2026 til 18 mar. 2026