Viðburðir
16.04.2026 kl. 9:00 - 10:00 Hús atvinnulífsins, Borgartúni 35

Fræðslufundur um útboðsmál í stafrænum lausnum

Samtök iðnaðarins standa fyrir fræðslufundi fyrir félagsmenn um útboðsmál með áherslu á stafrænar lausnir fimmtudaginn 16. apríl kl. 9:00-10:00 í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, fundarsalur Hylur, 1. hæð.

Á fundinum mun Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, fara yfir samspil útboðsréttar og samkeppnisréttar og hlutverk SI. Þá mun Dagmar Sigurðardóttir, lögmaður og einn eiganda Lagastoðar og sérfræðingur í opinberum innkaupum, fara yfir helstu álitaefni við innkaup á hugbúnaðarlausnum og hvað ber að hafa í huga við þátttöku í útboðsferli.

Bókunartímabil er frá 9 apr. 2026 til 16 apr. 2026