Viðburðir
28.04.2026 Hús atvinnulífsins, Borgartúni 35

Ársfundur SÍE - Vaxandi þörf fyrir grænt eldsneyti: Alþjóðlegar kröfur og íslenskur veruleiki

Samtök íslenskra eldsneytisframleiðanda, SÍE, boða til málstofu á ársfundi samtakanna í Húsi atvinnulífsins þriðjudaginn 28. apríl kl. 15, þar sem farið verður yfir vaxandi áhrif evrópsks loftslagsregluverks á rekstrarumhverfi íslensks iðnaðar, þær erlendu kröfur um græna eldsneytisupptöku sem munu taka gildi hér, og hvernig alþjóðlegar skuldbindingar gætu skapað grundvöll aukins orkusjálfstæðis fyrir komandi kynslóðir.

Samhliða átökunum við Hormús-fljótið sem grafa undan orkuöryggi heimsins, aukast alþjóðlegar kröfur um græna eldsneytisnotkun í geirum sem skipta sköpum við íslensk hagkerfi. Hvergi í Evrópu er olíunotkun á mann hærri en á Íslandi, en 70% af innfluttri olíu er nýtt í notkunarflokkum sem verða ekki rafvæddir á komandi árum, og þurfa því aðgang að sjálfbæru eldsneyti til að draga úr losun og mæta kröfum þeirra alþjóðasamtaka sem Ísland er aðili að. Tækifærin til að mæta kröfum með hagkvæmri, innlendri eldsneytisvinnslu eru gríðarleg, en samt sem áður hafa orkuskiptaaðgerðir stjórnvalda einblínt nánast eingöngu á rafvæðingu landsamgangna á meðan aðgerðir til að styðja við getu íslenskra fyrirtækja til að mæta alþjóðlegum skuldbindingum íslenskra stjórnvalda hafa verið í lágmarki.

Dagskrá

  • Loftslagsregluverk ESB: áhrif EU ETS, CBAM og RFNBO á grænan iðnað á Íslandi - Kristófer Orri Guðmundsson, Qair Ísland H2
  • Orkuskipti í flugi: Alþjóðlegum kröfum mætt með innlendum lausnum - Auður Baldvinsdóttir, IðunnH2
  • Orkuskipti á hafi: kvaðir um innleiðingu sjálfbærs eldneytis í skipasamgöngum - Matthías Ólafsson, Ólafsson Advisory

Skrá mig