Viðburðir
30.04.2026 kl. 9:00 - 10:30 Hilton Reykjavík Nordica

Nýsköpunarvikan: Bridging the Dual-Use Gap

Í tilefni af Nýsköpunarvikunni – Iceland Innovation Week (IIW), bjóða Íslandsstofa, Samtök iðnaðarins (SI) og utanríkisráðuneytið til opins morgunfundar fimmtudaginn 30. apríl kl. 9:00-10:30 á Hilton Reykjavík Nordica. Kynntar verðar niðurstöður nýrrar kortlagningar á sviði tækni með tvíþætt notagildi (e. Dual-Use Technology), ekki síst m.t.t. fjárfestinga, innkaupa og tækifæra í norrænu samstarfi. Í kjölfarið verða panel-umræður þar sem sjónum er einkum beint að tækifærum í norrænu samstarfi.

Viðburðurinn ber heitið Bridging the Dual-Use Gap og fer fram á ensku. Þátttaka er ókeypis en skráning er nauðsynleg.

DAGSKRÁ:

9:00 Opnun

  • Ávarp - Jónas G. Allansson, Varnarmálaskrifstofa, Utanríkisráðuneytið
  • Kynning á niðurstöðum kortlagningar um Dual-Use Tech-umhverfið: fjárfestingar, innkaup og tækifæri í norrænu samstarfi - Sæmundur K. Finnbogason, ráðgjafi

Pallborðsumræður - þátttakendur:

  • Ville Cantell, sendiherra Finnlands gagnvart Íslandi
  • Emil Grímsson, Arctic Trucks
  • Magnús Már Þórðarson, Tern Systems
  • Jóhanna Vigdís Guðmundsdóttir, KeyStrike
  • Sæmundur K. Finnbogason, ráðgjafi
  • Umræðum stýrir Kristinn Árni L. Hróbjartsson, VARÐA

Spurningar og netagerð

Hér er hægt að skrá sig.