Viðburðir
SÍK: Samtal við sjónvarpsstöðvar - Sýn
Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda hefur síðustu vikur efnt til fundaraðar með helstu sjónvarpsstöðvum landsins þar sem farið er yfir stöðu og framtíðarsýn í íslenskri dagskrárgerð. Tilgangur samtalanna er að efla gagnkvæman skilning á stefnu dagskrárdeilda, með sérstakri áherslu á kaup á innlendu efni og þróun þess markaðar til lengri tíma.
Mánudaginn 4. maí kl. 12–13 mæta fulltrúar frá Sýn til samtals í Húsi atvinnulífsins í Borgartúni 35. Þar gefst félagsmönnum tækifæri til að fá beina innsýn í áætlanir Sýnar og ræða framtíðarsamstarf á íslenskum sjónvarpsmarkaði.
Félagsmenn eru hvattir til að nýta þetta mikilvæga samtal og taka þátt í lokaþætti fundaraðarinnar. Boðið verður upp á léttan hádegisverð.
