Viðburðir
Rafrænn fundur með HMS, nr. 2
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) og Samtök iðnaðarins bjóða húsbyggjendum til annars lokaðs fundar í fundaröð HMS og SI. Fundurinn fer fram á Teams þriðjudaginn 12. maí kl. 12:00–12:45.
Þeir aðilar sem skráðu sig á síðasta fund ættu þegar að hafa fundaröðina í dagatalinu sínu.
Markmið fundanna er að efla samtal, bæta upplýsingaflæði um stöðuna á byggingarmarkaði og húsnæðisuppbyggingu og skapa vettvang fyrir milliliðalaust samtal um málefni sem snúa að HMS.
Á fundinum mun HMS m.a. fara betur yfir könnun HMS um skipulags- og búsetuóskir íbúa. Einnig gefst þátttakendum tækifæri til að ræða önnur mál beint við HMS og koma á framfæri athugasemdum, sjónarmiðum og innsýn úr greininni.
