HMS - Einföldun og nútímavæðing byggingarreglugerðar
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun stendur fyrir fundi fimmtudaginn 25. júní þar sem verða kynntar fyrirhugaðar breytingar á byggingarreglugerð. Fundurinn verður haldinn á skrifstofu HMS í Borgartúni 21 kl. 14:00, en einnig er hægt að fylgjast með honum á hms.is/streymi.
Breytingarnar eru liður í heildstæðu átaki stjórnvalda til að einfalda regluverk á sviði mannvirkjagerðar, stuðla að skilvirkari stjórnsýslu og skapa betri skilyrði fyrir uppbyggingu húsnæðis og annarra mannvirkja. Jafnframt er lögð áhersla á að viðhalda öryggi og gæðum mannvirkja með markvissari og áhættumiðaðri nálgun í byggingareftirliti.
Markmið breytinganna eru að:
- auka samkeppnishæfni mannvirkjaiðnaðarins með því að fella niður óþarfa stjórnsýslukröfur og innleiða áhættumiðað byggingareftirlit
- styrkja neytendavernd og fækka byggingargöllum í íslenskum mannvirkjum
- lækka byggingarkostnað og stuðla að aukinni nýsköpun í mannvirkjagerð
Félags- og húsnæðismálaráðherra mun ávarpa fundinn. Að því loknu munu sérfræðingar HMS fara yfir helstu breytingarnar.
Á vef HMS er hægt að skrá sig á fundinn.
