• Orri Hauksson framkvæmdastjóri SI

21. júl. 2010

Orri Hauksson ráðinn framkvæmdastjóri SI

 

Orri Hauksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. Hann er 39 ára vélaverkfræðingur frá Háskóla Íslands og MBA frá Harvard Business School.

Orri hefur gegnt ýmsum stjórnunarstöðum og hefur undanfarin ár sinnt fjárfestingum og setið í stjórnum nokkurra fyrirtækja fyrir hönd Novator, aðallega á sviði fjarskipta og hreinna orkugjafa í Bandaríkjunum og á Norðurlöndum. Hann var áður framkvæmdastjóri þróunarsviðs Símans. Orri var aðstoðarmaður forsætisráðherra árin 1997 til 2000.

Hann hefur störf hjá Samtökum iðnaðarins í ágúst.