• Afhending á Sæplastkerjum númer 500.000 og 500.001

10. ágú. 2010

Tímamót í 26 ára keraframleiðslu hverfisteypufyrirtækisins Promens Dalvík

Ker númer 500.000 og 500.001 afhent viðskiptavinum

 

Promens Dalvík hefur náð þeim merka áfanga að framleiða Sæplastker númer 500.000 og 500.001 og voru þau afhent tveimur af dyggum viðskiptavinum verksmiðjunnar með viðhöfn síðastliðinn föstudag. Það fór vel á því að þessi tímamót færu saman með hátíðarhöldum Fiskidagsins mikla á Dalvík enda hefur keraframleiðsla á Dalvík að lang stærstum hluta þjónað sjávarútvegi, bæði hér á landi og erlendis, þau 26 ár sem hverfisteypuframleiðsla hefur verið á Dalvík.

Dyggir notendur Sæplastkeranna

Ker númer 500.000 var afhent Geert Gregersen en hann er framkvæmdastjóri keraleigufyrirtækisins Dansk karudlejning í Esbjerg í Danmörku sem hefur þúsundir kera í fjölbreyttri útleigu til viðskiptavina. Fyrirtækið notar eingöngu Sæplastker í sinni starfsemi en útgerðir og fiskverkendur í Esbjerg hafa haft mikil viðskipti við verk-smiðjuna á Dalvík í yfir 20 ár.

Ker númer 500.001 var afhent Magnúsi Kristinssyni, útgerðarmanni hjá Berg Huginn í Vestmannaeyjum en fyrirtæki hans hefur um áraraðir notað Sæplastker í skipum sínum. Bergur-Huginn er meðal öflugustu útgerðarfyrirtækja hér á landi og hefur fengið margar viðurkenningar fyrir starfsemi sína, til að mynda umhverfisverðlaun LÍÚ, viðurkenningu á sjávarútvegssýningunni 2008 sem sem framúrskarandi íslensk útgerð og fleira mætti nefna.

Einn gámur af kerum á dag til viðskiptavina

Framleiðsla Sæplastkeranna á Dalvík byggðist á sínum tíma upp á þjónustu við sjávarútveg og hóf fyrirtækið fljótt innreið á erlenda markaði. Gerðir keranna í framleiðslu á Dalvík eru nú á milli 20 og 30 en vinsælustu gerðirnar hafa frá upphafi verið 460 lítra ker, 660 lítra og 1000 lítra. Í dag fara um 65% keraframleiðslu Promens Dalvík til fiskiðnaðar en 35% til annarra greina, fyrst og fremst í matvælaframleiðslu á borð við kjöt, grænmeti og fleira.

Verksmiðjan hefur á þessum 26 árum notað um 26 þúsund tonn af hráefnum til keraframleiðslunnar og það gefur hugmynd um umfangið að einn gámur af kerum hefur farið til viðskiptavina á hverjum framleiðsludegi í þessi 26 ár!

Á fullum afköstum getur verksmiðjan á Dalvík framleidd um 160 ker á sólarhring en á upphafsárunum voru afköstin 15 ker á sólarhring. Að jafnaði er framleitt á tvískiptum vöktum fimm daga vikunnar og einnig um helgar þegar svo ber undir.

Stöðugildi hjá Promens Dalvík eru nú tæplega 50.