Aðgerða er þörf í orkumálum þjóðarinnar

16. des. 2021

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, skrifar í Morgunblaðið um raforkumál.

Blikur eru á lofti í raforkumálum landsmanna. Undanfarið hefur umræða skapast um hvort raforka sé næg eða ekki og sitt sýnist hverjum. Staðreyndirnar tala sína máli. Skerða hefur þurft raforku til ákveðinna atvinnugreina og hluti landsmanna hefur þurft að búa við það eftir óveður að vera án raforku í marga daga. Þá hefur komið fram að ónýtt raforka rennur til sjávar engum til gagns vegna raforkukerfis sem er úr sér gengið. 

Óhætt er að fullyrða að með núverandi orkusamningum sé búið að selja þá raforku sem tiltæk er og hún því uppseld. Líkt og Landsvirkjun hefur greint frá þá hafa vinnslumet ítrekað verið slegin í vinnslukerfi Landsvirkjunar, nú síðast föstudaginn 3. desember þegar vinnsla fyrirtækisins fór í fyrsta skipti yfir 1.900 MW. „Við slíkar aðstæður verður mjög þröngt um tiltækt afl í vinnslukerfi Landsvirkjunar og það í raun alveg upp urið.“ Þá gerir orkuspá hins opinbera ráð fyrir aukinni raforkunotkun landsmanna á næstu árum og áratugum. 

Það er því ljóst að ef mæta á þörfum sem fylgja orkuskiptum og öðrum orkusæknum tækifærum sem felast í grænum umskiptum, svo ekki sé talað um raforkuöryggi fyrir alla landsmenn, þá verður að framkvæma hvoru tveggja; bæta núverandi raforkuflutningskerfi og virkja meira. Endurskoða þarf regluverk orkumála sem er allt of flókið auk þess sem opna þarf fyrir vindorku en núverandi kerfi gerir nánast eingöngu ráð fyrir að raforka sé unnin úr vatnsafli og jarðhita. 

Það er áhyggjuefni ef ekki tekst að sækja tækifærin sem felast í aukinni eftirspurn eftir grænni orku. Við búum svo vel að hafa aðgang að nægri slíkri orku en hana þarf að vinna og nýta til að skapa verðmæti fyrir þjóðarbúið. Við eflum samkeppnishæfni Íslands og þar með lífskjör allra landsmanna með aðgengi að nægu magni raforku til að mæta kröfum framtíðarinnar. 

Ný ríkisstjórn hefur kynnt framsækna framtíðarsýn. Því eru vonir bundnar við að raforkumál landsmanna verði sett í forgang með nauðsynlegum framkvæmdum svo Ísland geti áfram verið í fremstu röð í framleiðslu og nýtingu á endurnýjanlegri orku. Hefjast þarf handa hið fyrsta.

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI.

Morgunblaðið, 16. desember 2021.