Áhugi og metnaður í loftslagsmálum

22. sep. 2019

Loftslagsmálin eru eitt stærsta viðfangsefni okkar tíma og atvinnulífið ætlar ekki að láta sitt eftir liggja til að ná árangri á þeim vettvangi. 

Loftslagsmálin eru eitt stærsta viðfangsefni okkar tíma og atvinnulífið ætlar ekki að láta sitt eftir liggja til að ná árangri á þeim vettvangi. Til marks um áhuga á málefninu var húsfyllir á stofnfundi Samstarfsvettvangs atvinnulífs og stjórnvalda um loftslagsmál og grænar lausnir. Það gefur fyrirheit um vilja og metnað atvinnulífsins til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í samræmi við markmið stjórnvalda. Þessi mikli áhugi dregur einnig fram þá staðreynd að vandinn er viðurkenndur enda er vettvangurinn stofnaður um aðgerðir. 

Kannanir meðal félagsmanna Samtaka iðnaðarins staðfesta aukinn áhuga á umhverfismálum og má gera ráð fyrir að það sé almennt þannig í atvinnulífinu að vilji sé til að gera enn betur og meira. Við Íslendingar höfum góða sögu að segja um nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa og jarðvarma til húshitunar. Þá höfum við byggt upp þekkingu og þróað grænar lausnir sem hægt er að flytja út en þannig getum við látið gott af okkur leiða og hjálpað öðrum ríkjum að ná sínum markmiðum. 

Væntingar um árangur 

Vettvangurinn mun vonandi skila tilætluðum árangri og má nefna fimm þætti þar að lútandi. Tekist hefur að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda þannig að orðspor Íslands hefur eflst eins og að er stefnt. Í öðru lagi geta grænar lausnir orðið mikilvæg útflutningsvara. Í þriðja lagi að fyrirtæki hafi sett sér markmið um minni losun gróðurhúsalofttegunda og grípi til aðgerða í samræmi við það. Lausnirnar eru ekki endilega til og því leikur nýsköpun stórt hlutverk í lausn vandans. Vonandi líta nýjar grænar lausnir dagsins ljós sem spretta af hugviti hér á landi. Í fimmta lagi þurfa stjórnvöld að halda áfram að hvetja til aðgerða til að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda, ryðja hindrunum úr vegi þar sem það á við, beita jákvæðum hvötum og ganga á undan með góðu fordæmi enda hafa stjórnvöld mikil áhrif með vali sínu á vörum og þjónustu. 

Samstarf atvinnulífs og stjórnvalda er lykilforsenda þess að hægt verði að ná árangri í loftslagsmálum. Það er að miklu að keppa og með því að taka höndum saman getum við náð þeim árangri sem að er stefnt.

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI.

Morgunblaðið, 21. september 2019.