Atvinnulífið sýnir frumkvæði í loftslagsmálum

2. sep. 2019

Á vormánuðum var stofnaður samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda um loftslagsmál og grænar lausnir. 

Á vormánuðum var stofnaður samstarfsvettvangur atvinnulífs og stjórnvalda um loftslagsmál og grænar lausnir. Atvinnulífið hefur bæði metnað og vilja til að gera enn betur og meira í loftslagsmálum en þegar hefur verið gert. Samvinna ólíkra aðila er lykill að árangri í loftslagsmálum og þess vegna hafði atvinnulífið frumkvæði að samstarfi við stjórnvöld í þeim málum. Í atvinnulífi liggja lausnirnar og því er vert að hvetja íslensk fyrirtæki til að taka þennan málaflokk enn fastari tökum. Íslenskur iðnaður hefur nú þegar stigið stór skref í átt að sjálfbærni og er ég sannfærð um að íslenskt hugvit og lausnir munu geta orðið leiðandi á heimsvísu og hjálpað öðrum þjóðum að draga úr losun enda er loftslagsvandinn hnattrænn vandi.

Í síðustu viku komu forsætisráðherrar Norðurlandanna til Íslands á árlegum sumarfundi sínum og enginn annar en Þýskalandskanslari var gestur fundarins. Á fundinum samþykktu ráðherrarnir nýja framtíðarsýn Norðurlandanna um aðgerðir gegn loftslagsbreytingum til næstu 10 ára. Það er ánægjulegt að svo einörð samstaða náist á milli leiðtoga Norðurlandanna. Markmiðið er að Norðurlöndin verði sjálfbærasta svæði í heimi á næstu tíu árum. Ljóst er að aðgerðir okkar geta orðið öðrum þjóðum leiðarljós í komandi framtíð hvernig við getum snúið við þeirri óheillaþróun sem hlýnun jarðar er.

Því fagna ég auknu samstarfi atvinnulífs og stjórnvalda en á móti saknaði ég þess að á sumarfundi ráðherranna skyldi ekki mikilvægi atvinnulífsins vera dregið betur fram og þær lausnir sem þar er að finna. Það er miður að í allri umræðunni í síðustu viku hafi lykilforsendan fyrir árangri í þessum málaflokki ekki verið rædd en lausnirnar og aðgerðirnar sem kallað er eftir munu koma frá iðnaði og atvinnulífi.

Saman verðum við að leita lausna sem miða að því að gera jörðina að enn betri stað fyrir komandi kynslóðir.

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI.

Morgunblaðið, 31. október 2019.