Bætt heilsa jarðar

6. júl. 2022

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, skrifar í Fréttablaðið um orku- og umhverfismál.

Græn iðnbylting stendur nú yfir. Almenningur, fyrirtæki og stjórnvöld um allan heim hafa tekið höndum saman um að bæta heilsu jarðar. Hér á landi hafa stjórnvöld sett metnaðarfull markmið í orku- og loftslagsmálum um kolefnishlutleysi og að Ísland verði óháð jarðefnaeldsneyti árið 2040. Það þýðir að við ætlum að hætta að brenna olíu og þess í stað knýja bíla, skip og flugvélar með grænum orkugjöfum.

Eins þarf að finna nýjar loftslagsvænar lausnir í iðnaði. Þetta er mögulegt og hér á landi hafa orðið til grænar lausnir sem vakið hafa athygli víða um heim en það þarf nýsköpun og auknar fjárfestingar til að ná settu marki.

Þetta höfum við áður gert með góðum árangri hér á landi, nú síðast með hitaveituvæðingu.

Bætt lífskjör landsmanna

Með framleiðslu rafmagns verður búið til grænt rafeldsneyti og notað sem orkugjafi í stað olíu. Ísland nýtur algjörrar sérstöðu meðal ríkja heims þar sem hér á landi er framleidd græn orka meðan heimurinn er að miklu leyti knúinn áfram af olíu, kolum og gasi. Með því að framleiða aukna orku sjálf í stað þess að flytja hana inn verður Ísland ekki aðeins sjálfstætt í orkumálum heldur bætir það heilsu jarðar og skapar efnahagslegan ávinning.

Þessum metnaðarfullu markmiðum viljum við ná án þess að rýra lífskjör landsmanna. Orkusækinn iðnaður byggðist upp fyrir um hálfri öld og hefur skilað samfélaginu miklum verðmætum og mun gera áfram.

Aukin orkuöflun í þágu samfélags

Eigi þessi framtíðarsýn að verða að veruleika þarf að afla meiri orku á Íslandi og nýta hana betur. Til þess eru mörg tækifæri án þess að ganga um of á náttúruna. Þannig er hægt að nýta gjafir jarðar og njóta þeirra á sama tíma.

Vonandi verður tilefni til að fagna árangri í loftslagsmálum árið 2040. Íslenskur iðnaður mun ekki láta sitt eftir liggja til að ná settum markmiðum í loftslagsmálum og að skapa aukin verðmæti.

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI.

Fréttablaðið / Frettabladid.is, 6. júlí 2022.