Flýta úthlutun til að auka húsnæðisöryggi

22. maí 2020

Nú er rétti tíminn til að byggja þar sem byggingariðnaðurinn er meðal þeirra greina sem vænst er mikils samdráttar í ár. 

Nú er rétti tíminn til að byggja þar sem byggingariðnaðurinn er meðal þeirra greina sem vænst er mikils samdráttar í ár og ljóst að mikið verður um lausa framleiðslugetu í greininni. Hana ætti að nýta til aukinnar uppbyggingar þar sem þörfin er hvað mest á svokölluðum almennum íbúðum sem fjármagnaðar eru á grundvelli laga með það að markmiði að auka húsnæðisöryggi efnaminni fjölskyldna og einstaklinga með því að bæta aðgengi að íbúðarhúsnæði til leigu.

Samkvæmt Húsnæðis- og mannvirkjastofnun er mikil eftirspurn eftir stofnframlögum til byggingar almennra íbúða. Heildarfjármagn til úthlutunar á árinu 2020 er um 3,7 ma.kr. en sótt var um stofnframlög fyrir 5,6 ma.kr. Þar með þarf að hafna umsóknum sem nema um 2 ma.kr. Ef horft er til fjölda umsókna er ljóst að mikill vilji er fyrir því að koma að frekari uppbyggingu almennra íbúða en sótt var um stofnframlög til byggingar á 521 íbúð og til kaupa á 248 íbúðum. Mestur var áhuginn meðal umsækjenda við uppbyggingu fyrir tekjulága á vinnumarkaði eða 279 íbúðir, 166 íbúðir fyrir námsmenn og 144 íbúðir á vegum sveitarfélaga. Bendir þetta til að nú þegar eru tilbúin verkefni víða um land þar sem hefja má framkvæmdir um leið og fjármagn er tryggt. Mikilvægt er að tryggja áframhaldandi uppbyggingu þar sem þörfin er mest og í ljósi stöðunnar ætti að ráðast strax í endurmat á þörfinni á almennum íbúðum sem kann að aukast talsvert í kjölfar COVID-19 faraldursins.

Þá er enn ríkari þörf vegna mikils samdráttar í byggingu íbúðarhúsnæðis fyrir almennan markað. Í vortalningu Samtaka iðnaðarins á íbúðum í byggingu á höfuðborgarsvæðinu mældist 42% samdráttur á fyrstu byggingastigum. Leita þarf aftur til áranna 2011-12 til að finna viðlíka samdrátt í byggingu íbúða innan höfuðborgarinnar en í kjölfar þess samdráttar varð alvarlegur húsnæðisskortur sem bitnaði verst á þeim sem í dag gætu fengið öruggt húsaskjól í gegnum almenna íbúðakerfið.

Það blasir því við að nú er rétti tíminn fyrir stjórnvöld að flýta úthlutunum þeirra stofnframlaga sem þegar voru á fjármálaáætlun fyrir árin 2021 og 2022 svo að hægt verði að tryggja aukið húsnæðisöryggi til framtíðar.

Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI.

Morgunblaðið, 21. maí 2020.