Heilbrigðistækni getur gjörbylt aðgengi og gæðum í heilbrigðisþjónustu

13. jún. 2025

Erla Tinna Stefánsdóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI, skrifar um heilbrigðistækni á Vísi.

Við lifum á tímum hraðra breytinga. Heilbrigðiskerfið stendur frammi fyrir djúpstæðum áskorunum að mörgu leyti, og birtast þær meðal annars í mannauðsskorti, síauknum þrýstingi á meira fjármagn og breyttum væntingum og kröfum almennings. En í miðju þessa umróts glittir líka í einstök tækifæri. Tækni, og þá sérstaklega heilbrigðistækni, getur átt ríkan þátt í að leysa þær stóru áskoranir sem heilbrigðiskerfið stendur frammi fyrir. Hvort sem það er notkun gervigreindar, annarra gagnalausna, fjarheilbrigðistækni eða nýrra samskiptaforma, þá getur heilbrigðistækni gjörbylt aðgengi og gæðum og aukið skilvirkni í heilbrigðisþjónustu. Mikilvægt er að tæknilausnir séu þróaðar með þarfir notenda í fyrirrúmi og að þær mæti raunverulegum áskorunum innan kerfisins og að hið opinbera styðji við þróun þeirra með skýru regluverki og raunhæfum samningum.

Ísland býr yfir sérstöðu sem getur styrkt stöðu heilbrigðistækniiðnaðar og bætt skilvirkni í heilbrigðiskerfinu, meðal annars hátt menntunarstig, þróað heilbrigðiskerfi og jákvætt viðhorf almennings til tækninýjunga. Þetta skapar aðstæður til nýsköpunar og prófana heilbrigðistæknilausna sem geta skilað árangri bæði innanlands og á alþjóðavísu.

Til að nýta tækifærin til fulls þarf að efla aðgengi að fjármagni og sérfræðiþekkingu, festa í sessi skattahvata til rannsókna og þróunar, tryggja áframhaldandi stuðning við nýsköpunarklasa og vísindagarða, og síðast en alls ekki síst; skýra stefnumörkun stjórnvalda í málefnum heilbrigðiskerfisins og hagnýtingar heilbrigðistæknilausna.

Heilbrigðistækni er í miklum vexti hér á landi og getur orðið ein af mikilvægustu vaxtargreinum til framtíðar hér á landi, ásamt því að auka hagræði í ríkisrekstri. Með markvissum aðgerðum, samstarfi við stjórnvöld og fjárfestingu í nýsköpun getur Ísland skapað sér sérstöðu sem sveigjanlegt þróunarumhverfi og þekkingarsamfélag á sviði heilbrigðistækni.

Samtök iðnaðarins munu áfram vinna að því að styðja við vöxt íslensks heilbrigðistækniiðnaðar, stuðla að bættu starfsumhverfi fyrir sprotafyrirtæki og tryggja að rödd greinarinnar heyrist við mótun stefnu í heilbrigðismálum og nýsköpun á Íslandi.  

Erla Tinna Stefánsdóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði SI.

Vísir, 13. júní 2025.