Hugverkaiðnaður verði öflugasta stoðin

8. sep. 2022

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, skrifar um hugverkaiðnaðinn í Viðskiptablaðinu. 

Hugverkaiðnaður hefur fest sig í sessi sem fjórða stoð útflutnings til viðbótar við orkusækinn iðnað, sjávarútveg og ferðaþjónustu. Á árinu 2021 námu útflutningstekjur hugverkaiðnaðar ríflega 192 milljörðum króna og hafa þær vaxið um 91% frá árinu 2013 eða um 91 milljarð króna. Fyrirtæki í hugverkaiðnaði eiga það sameiginlegt að fjárfesta í rannsóknum og þróun sem er uppspretta verðmætasköpunar í greininni. Tækifærum í hugverkaiðnaði eru fá takmörk sett, hvort sem litið er til tölvuleikjagerðar, líftækniafurða, heilbrigðistækni, hugbúnaðar eða hátækni á ýmsum sviðum. 

Þessi mikli vöxtur hugverkaiðnaðar undanfarin ár er ekki tilviljun. Hann kemur til vegna öflugra frumkvöðla og stórstígra breytinga á skilyrðum til nýsköpunar hér á landi sem stjórnvöld hafa ráðist í. Stjórnvöld hafa lagt sín lóð á vogarskálarnar til að efla hugverkaiðnaðinn með miklum umbótum á skilyrðum og hvötum til nýsköpunar, meðal annars með auknum skattahvötum vegna rannsókna- og þróunar fyrirtækja. 

Skortur á sérfræðingum 

Vöxtur í hugverkaiðnaði er fagnaðarefni af ýmsum ástæðum. Fyrirtæki í hugverkaiðnaði skapa eftirsóknarverð og verðmæt störf. Hugverkaiðnaður er jafnframt síður háður utanaðkomandi sveiflum og áföllum. Nú þegar háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra hefur sett markmið um að hugverkaiðnaður verði stærsta stoðin árið 2030 er ekki seinna vænna en að setja af stað frekari umbætur. Markmiðið er bæði metnaðarfullt og raunhæft. Jarðvegurinn er frjór fyrir frekari vöxt og þarf því að huga vel að því sem upp á vantar til að settum markmiðum verði náð. 

Helsta vaxtahindrunin í dag er skortur á sérfræðingum. Nýleg greining SI sýnir að það vantar um 9 þúsund sérfræðinga á næstu fimm árum til að hámarka vaxtagetu fyrirtækja í hugverkaiðnaði. Íslenskt menntakerfi þarf því að mennta fleiri sérfræðinga en ljóst er að það þarf einnig mikinn fjölda erlendra sérfræðinga til starfa hér á landi ef vaxtaáformin eiga fram að ganga. Það er því mikilvægt að stjórnvöld breyti reglugerðum þannig að hægt verði að greiða götu þeirra hingað til lands, líkt og önnur ríki gera til að laða til sín erlenda sérfræðinga. Engan tíma má missa Samtök iðnaðarins vænta mikils af stjórnvöldum þegar kemur að næstu skrefum. 

Engan tíma má missa 

en nýleg dæmi eru um fyrirtæki sem hafa flutt hluta af starfsemi sinni út fyrir landsteinana sökum þess að ekki var nægt framboð af sérfræðingum hér á landi. Einnig þarf að huga að öðrum þáttum eins og húsnæði fyrir alla þá sem við viljum fá til landsins til starfa í íslenskum hugverkaiðnaði. Mæta þarf þeirri þörf með enn frekari húsnæðisuppbyggingu. 

Hagspár virðast ekki taka mið af mögulegum vexti hugverkaiðnaðar og því eru hagvaxtarspár líklega að vanmeta vöxt framtíðar. Það eru góðar fréttir fyrir landsmenn en framtíðin er í okkar höndum. Einnig eru það góðar fréttir fyrir aðþrengdan ríkissjóð þar sem auknum vexti fylgja auknar tekjur. Það er því sannarlega bjart yfir ef litið er til næstu tíu ára ef okkur auðnast að taka réttar ákvarðanir.

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI.

Viðskiptablaðið, 8. september 2022.