Samtök iðnaðarins gæta heildarhagsmuna

1. mar. 2020

Umræða um upprunaábyrgðir raforku hefur hreyft við fólki, meðal annars forstjóra Landsvirkjunar, eftir að fréttaskýringarþátturinn Kveikur setti málið á dagskrá. 

Umræða um upprunaábyrgðir raforku hefur hreyft við fólki, meðal annars forstjóra Landsvirkjunar, eftir að fréttaskýringarþátturinn Kveikur setti málið á dagskrá. Afstaða Samtaka iðnaðarins í því máli hefur verið skýr um árabil og byggist á því að standa vörð um jákvæða ímynd Íslands sem lands endurnýjanlegrar orku og að efla ímyndina enn frekar í þágu heildarinnar. Í grein forstjóra Landsvirkjunar fyrir viku var nokkrum spurningum beint til samtakanna og hefur þeim verið svarað á vefsvæði SI. Einnig var spurt hverra hagsmuna Samtök iðnaðarins gæti. Því er auðsvarað. 

Samtök iðnaðarins gæta heildarhagsmuna og beita sér fyrir umbótum í íslensku samfélagi svo auka megi verðmætasköpun í landinu enda trúum við því að þannig aukist raunveruleg lífsgæði landsmanna. Við höfum gefið út fjölmargar skýrslur á undanförnum árum, sem unnar hafa verið í góðri samvinnu stjórnar SI, félagsmanna, starfsmanna og sérfræðinga þar sem ekki er eingöngu einblínt á vandamál heldur eru lagðar til fjölmargar leiðir til aukinnar samkeppnishæfni landsins. Þannig stuðlum við að uppbyggilegri umræðu í íslensku samfélagi. 

Í vikunni voru boðaðir nýir tímar í starfs- og tækninámi með samstarfi menntamálaráðuneytisins, Samtaka iðnaðarins og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Það er von okkar að iðnnemum fjölgi þannig að færnimisræmi á vinnumarkaði minnki. Það eru heildarhagsmunir. 

Samtökin standa að ári nýsköpunar á þessu ári enda eru iðnaður og nýsköpun samofin. Það er trú okkar að nýsköpun verði drifkraftur vaxtar, skapi eftirsótt störf og nýjar lausnir á samfélagslega mikilvægum viðfangsefnum. Þar liggja hagsmunir okkar allra. 

Innviðir landsins hafa verið vanræktir síðasta áratuginn en nú horfir það til betri vegar. Ríkisstjórnin kynnti í gær átak til að bæta öryggi innviða landsins og fögnum við þeim umbótum. Þó er ljóst að fjárfesta þarf meira í innviðum landsins svo þeir þjóni sínu hlutverki og til að örva hagvöxt. Þar liggja hagsmunir heildarinnar og við beitum okkur í þágu þeirra. 

Öll þurfum við þak yfir höfuðið. Samtök iðnaðarins beita sér fyrir umbótum í þágu byggingariðnaðarins þannig að uppbygging verði hagkvæmari og skilvirkari. Þannig verða byggðar ódýrari íbúðir. Það eru hagsmunir heildarinnar. 

Iðnfyrirtæki nota nálægt 90% raforkunnar á Íslandi og því látum við okkur raforkumál varða. Samtökin leggja áherslu á samkeppnishæft raforkuverð en við skiptum okkur að öðru leyti ekki af verðinu. Nýting orkunnar hefur bætt lífskjör landsmanna og mun svo áfram verða. Ráðherra málaflokksins benti nýverið á að raforkumarkaður á Íslandi væri óþroskaður. Undir það má taka og höfum við lagt til ýmsar leiðir til að þroska markaðinn. Hagsmunir heildarinnar felast í slíkum umbótum sem og aukinni nýtingu. 

Umhverfis- og loftslagsmál verða sífellt mikilvægari enda eru almenningur og fyrirtæki meðvitaðri um nauðsyn þess að ganga vel um náttúruna. Landsvirkjun og Samtök iðnaðarins ásamt fleiri fyrirtækjum og samtökum stofnuðu til samstarfs við stjórnvöld um loftslagsmálin með stofnun Grænvangs enda hafa fyrirtæki landsins metnað og vilja til að ná settum markmiðum og vinna með stjórnvöldum. Þarna fara hagsmunir iðnaðar og orkufyrirtækja sannarlega saman og er ég sannfærð um að það samstarf muni skila árangri í þágu heildarinnar. Lítil skref sem við stígum á hverjum degi leiða smám saman til stórra stökka framfara og aukinna lífsgæða. Þannig verður Ísland áfram í fremstu röð.

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður SI.

Morgunblaðið, 29. febrúar 2020.